Darren Till mætti Anthony Taylor, öðrum fyrrverandi MMA bardagamanni, eftir að Tommy Fury dróg sig úr keppni gegn honum. Darren Till fór með sigur af hólmi eftir rothögg í 6. lotu þegar þeir mættust í Manchester, Englandi á MF & DAZN X Series 20 sl laugardag.
Það stóð til að Darren Till myndi mæta Tommy Fury í hnefaleikabardaga en Tommy Fury dróg sig úr keppni vegna þess að Darren Till hafði sagt það síendurtekið að hann myndi ekki hika að grípa til þeirra ráða að sparka eða nota aðrar mma aðferðir ef hann ætti í erfiðleikum í bardaganum.
Till mætti í staðinn Anthony Taylor sem hóf feril sinn sem MMA bardagamaður hjá Bellator og barðist þar 5 sinnum. Taylor hefur þó barist mun meira í hnefaleikum og ekki barist í MMA síðan hann sigraði bardagann sinn á Bellator 238 í janúar 2020. Eftir það sneri hann sér að hnefaleikum og var fyrsti bardaginn hans einmitt gegn Tommy Fury.
Taylor gaf Till góðan bardaga framan af en gæði Till komu meira og meira í ljós þegar leið á bardagann. Till sló Taylor þrisvar niður í bardaganum og eftir þriðja skiptið stóð hann ekki aftur upp.






