MMA spjall vikunnar er um frábært UFC 298 þar sem að okkar heitt elskaði Volkanovski þurfti því miður að sætta sig við annað rothöggið í röð! En það var gegn Ilia Topuria sem er nýji meistarinn á götunni og heillaði heiminn með sinni frammistöðu.
Við snertum svo auðvitað á því nýjasta í fréttum. Mjölnir sendi frítt föruneyti til Zagreb á ADCC trials, Reykjavík MMA sendi boxara og kickboxara til Póllands á ótrúlega furðulega sýningu og UFC tilkynnti um aðalbardagann á UFC 300.
Við snertum svo örlítið á UFC Fight Night næstu helgi. Brandon Moreno og Brandon Royval mætast í sínum endurleik næstu helgi.