Svakaleg helgi að baki. Kolbeinn Kristinsson varð Baltic Union meistari í Finnlandi eftir frábæra frammistöðu gegn Pavlo Krolenko.
Icebox verður í allri sinni dýrð á föstudaginn kemur. Þar munum við bjóða norðmönnum velkomna og para þá gegn okkar besta hnefaleikafólki. UFC 302 var síðustu helgi og var smekkfullt af skemmtun! Til að slá svo botninn í þáttinn snertum við aðeins á UFC næstu helgi þar sem að Cannonier og Imavov mætast í aðalbardaga kvöldsins.