Eddier Alvarez hefur opinberað rangar myndir af kjálkabroti sem hann varð fyrir í bardaga gegn Jeremy Stephens á Knucklemania 5. Stephens var dæmdur sigur með tæknilegu rothöggi eftir að horn Alvarez köstuðu inn handklæðinu í þriðju lotu.
Alvarez birti röngen mynd á Instagram þar sem má greinilega sjá brot í kjálkabeini Alvarez og ef einhverjir efast um hörku Alvarez eftir helgina er nokkuð ljóst að hornið hans hafði fullt tilefni til að stöðva bardagann. Í færslu þar sem Alvarez birti umrædda röngen mynd segir hann að Stephens hafi hitt sig með drápshöggi í fyrstu eða annarri lotu. Ég reyndi að gleyma þessu en í þriðju lotu voru áverkarnir orðnir of miklir sagði Alvarez.
Ekki er ljóst hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir Alvarez en hann hefur ekki gefið út hvort hann ætli sér að berjast áfram eða hvort hanskarnir séu komnir á hilluna hjá 41 árs gömlum Alvarez.