HomeBoxEmin Kadri með öruggan sigur í þriðja atvinnumanna bardaganum

Emin Kadri með öruggan sigur í þriðja atvinnumanna bardaganum

Emin Kadri Eminsson mætti Lettanum Aigars Zenuks í sínum þriðja bardaga í atvinnumanna hnefaleikum sem fram fór í gær, laugardaginn 7. mars í Helsinki, Finnlandi. Emin sýndi mikla yfirburði og sigraði á sannfærandi hátt með einróma dómaraákvörðun.

Emin sem er nú 3-0 sem atvinnumaður í hnefaleikum keppti fyrstu tvo bardaga sína í Mexíkó og var þetta hans fyrsti atvinnumannabardagi í Evrópu. Emin æfði í Las Vegas með Jamie Robinson fyrir fyrri tvo bardagana en í þessum bardaga var hann með sinn aðalþjálfara úr VBC, eða Hnefaleikafélagi Kópavogs, Kjartan Val Guðmundsson og auk hans var einnig Charlie Collins í horninu.

Zenuks kom sterkur út í fyrstu lotu og var mættur til að vinna. Emin sagði að hann og þjálfari hans hafi verið mjög ákafir í vigtuninni. Hann tók mjög fast í hendina á honum og togaði hann til sín, greinilega að spila einhverja hugarleiki. Þeir höfðu ýmislegt út á að setja með vigtunina og stærðina á hringnum en Emin talaði þó vel um andstæðinginn. Hann sagði hann hafa verið lifandi og að hann hafi komið inn í bardagann til að vinna. Zenuks var enginn “journey man” eða “pulsa” á góðri íslensku, hann var með 40 bardaga reynslu í ólympískum hnefaleikum og 1-1 sem atvinnumaður með sigur eftir rothögg.

Emin sagði að honum hefði fundist hann sjálfur byrjað pínu stífur en hafa komið sér í gang og notaði stunguna vel, sem honum fannst hafa að lokum unnið bardagann. Eftir fyrstu stungurnar fann hann samt að hann þurfti að kýla hann með fastri hægri hendi, sveifla beint á hann, þó það lendi í vörninni, til þess að láta hann vita að hann væri ekki kominn til að leika sér.

Emin fannst hann hafa gert þetta skynsamlega og afgreitt þetta örugglega. Hann var ekki að taka áhættur, hélt áfram að vinna með stungunni, hélt fjarlægð og stjórnaði öllum lotunum. Emin skildi ekki hvernig einhverjir dómarar gáfu andstæðingnum eina lotuna, fannst það mjög skrítið, sem undirritaður fréttamaður MMA Frétta tekur undir.

Það var liðið heilt ár frá síðasta bardaga sem gæti vel útskýrt stífleikann sem Emin fannst hann finna fyrir. Hann sagði svo að þessi bardagi hafi hreinsað það burt úr kerfinu og hann muni koma til með að eiga betri frammistöðu næst en næsti bardagi Emins verður á heimavelli þann 10. apríl næstkomandi í Gamla Bíó.

Kjartan Valur Guðmundsson þjálfari Emins hafði þetta að segja við MMA Fréttir:
“Emin stóð sig vel á móti sterkum andstæðing sem var mættur til að reyna að vinna. Undirbúningurinn gekk mjög vel, Emin var ekki búin að keppa í meira en ár þannig ég var mjög sáttur með hans frammistöðu.”

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið