Josh Hokit og Curtis Blaydes buðu upp á algjört stríð á aðalbardagakorti UFC 327 í bardaga sem verður lengi í minnum hafður.
Frá fyrstu sekúndu var þetta hreint stríð þar sem Hokit tók frumkvæðið og breytti bardaganum strax í slagsmál. Hann ýtti tempóinu upp, kastaði út þungum höggum og neyddi Blaydes til að taka þátt í óreiðunni.
Hokit kom af miklum krafti inn í bardagann og setti Blaydes snemma í vandræði með þungum hægri höggum og hraða. Blaydes lifði þó af erfið augnablik, svaraði með reynslu sinni og blandaði inn fellutilraunum á meðan hann hélt áfram að berja til baka.
Tempóið var ótrúlegt fyrir þungavigt og báðir menn þreyttust snemma, en hvorugur gaf tommu eftir. Þrátt fyrir það héldu þeir áfram að skiptast á höggum, bæði standandi og í clinchinu þar sem stutt högg í líkama réðu ríkjum og Hokit lenti nokkrum góðum hnjám.
Hokit sýndi mikla seiglu og karakter, sérstaklega að lifa af fyrstu lotuna en Blaydes náði að koma honum í mikil vandræði. Þrátt fyrir að vera þreyttur og taka högg hélt hann áfram að svara með kraftmiklum höggum og var ítrekað hættulegur. Það sem vakti ekki síður athygli var hvernig hann lék sér að andstæðingi sínum í miðjum bardaga, brosandi, dansandi og gaf Blaydes ítrekað fingurinn, jafnvel á meðan hann var að taka við höggum.
Blaydes sýndi hins vegar hvers vegna hann hefur verið meðal fremstu þungavigtarmanna heims. Hann lifði af storminn, hélt áfram að vinna með magni og þrýstingi og svaraði í hvert skipti þegar hann var settur í vandræði.
Þriðja lotan var afar jöfn þar sem báðir menn voru gjörsamlega tæmdir en héldu áfram að berjast af hreinum vilja. Höggatölur voru nánast jafnar og hvorugur gaf eftir, sem gerði bardagann enn dramatískari. Josh Hokit stimplaði svo nafnið sitt á lotuna með góðum endaspretti.
Þetta var bardagi þar sem Hokit setti tóninn frá byrjun og dró Blaydes inn í óreiðuna. Útkoman skiptir í raun minna máli en það sem áhorfendur fengu að sjá: hreint og beint stríð í búrinu.
Bardaginn hlaut heiðurinn bardagi kvöldsins og sló met fyrir flest högg í þriggja lotna þungavigtarbardaga í UFC.





