Haustbikarmót HNÍ fer af stað með pomp og brakt næstkomandi laugardag, 6. september. Mótið verður hluti af dagskrá Ljósanóttar í Keflavík og má eiga von á gífurlegri stemningu í Blue Höllinni þennan laugardag.
Áhorfendur sem kaupa miða á mótið fá QR-kóða þar sem þeir mega nota til að kjósa hnefaleikamann kvöldsins. En sá keppandi sem hlýtur mestu kosninguna fær 100 þúsund króna verðlaun. Barist verður undir ljósabúnaði frá Luxor og Herra Keflavík mun trylla salinn með tónlistaratriði.
MMA Fréttir mun streyma frá viðburðinum í beinni útsendingu á Youtube-rás sinni og hægt verður að fylgjast með stemningunni á Instagram reikningi Fimmtu Lotunnar.
Bikarmótaröð HNÍ er hugarfóstur atvinnuhnefaleikamannsins Kolbeins Kristinssonar sem sér um að para saman keppendum en hann afhenti til HNÍ níu bardaga dagskrá eftir að skráningu lauk. Bardagarnir eru eftirfarandi:
90+ kg flokkur: Sigurjón Guðnason (Bogatyr) Vs. Ágúst Davíðsson (ÞÓR).
-80 kg Bjarni Ottósson (HFR) Vs. Álvaro Heredero López (ÆSIR).
-80 kg Tristan Máni (HAK) Vs. Alex Orri Ívarsson (HR).
-75 kg Gauti Már (HFR) Vs. Jón Ólafur Haraldsson (ÞÓR).
-65 kg Max Angelo Chang Sulca (HR) Vs. Carles Belenguer Cortina (ÆSIR).
-80 kg Guðmundur Máni Hildarson (HFR) Vs. Bragi Freyr Eiríksson (ÞÓR).
-70 kg Sindri Thor Einarsson (HFH) Vs. Kristján Eðvarsson (HR).
-65 kg Krzysiu Karykowski (HFK) Vs. Volodomyr Moskvychov (HAK).
-70 kg Ísak Logi Weaver (HFR) Vs. Arnar Geir (ÞÓR).
Húsið opnar kl. 12:00 og má eiga von á að fyrsta viðureign hefjist kl. 13:00. Það verður mikil skemmtun í boði á Suðurnesjunum yfir helgina og full ástæða til að gera sér ferð og taka þátt.





