Nýlega var lekið myndbandi af æfingu hjá Kevin Lee sem á sínum tíma þótti einn mest spennandi léttvigtarbardagamaður UFC samtakanna. Á myndbandinu sést Lee taka á sig þungt högg og vankast töluvert við það. Lee segist ekki vita hver lak myndbandinu en er mjög ósáttur við lekann enda er það óskrifuð og stundum skrifuð regla í bardagaklúbbum að æfingarmyndbönd fari ekki í dreifingu.
Lee ætlar sér að komast að því hver birti myndbandið en sagði að það hafi verið honum sjálfum að kenna að myndbandið sé yfir höfuð til þar sem hann hafi hætt við fljúgandi hné til að slasa ekki félaga sinn og þá hafi hann fengið höggið í andlitið. Netheimar hafa nú lagt lóð sín á vogarskálarnar til að aðstoða Lee við að finna hver deildi myndbandinu upphaflega en einhverjir telja að Magerram Gasanzade, bardagamaður Rizin-samtakanna, hafi verið fyrstur til að deila myndbandinu, en það eru óstaðfestar getgátur á þessum tímapunkti.
Lee, sem er 32 ára, er með samning við GFL-bardagasamtökin sem eru ný bardagasamtök sem hafa verið töluvert í fréttum undanfarið þrátt fyrir að hafa ekki enn haldið bardagakvöld. Fyrsta bardagakvöld samtakana verður haldið í apríl og mun það fara fram í Los Angeles.





