Það er mikið um að vera í bardagaheiminum þessa dagana. Glacier Fight Night II fór fram í gærkvöldi, laugardaginn 28. febrúar, með 11 bardaga MMA veislu. Kolbeinn Kristinsson atvinnuhnefaleikamaður nýtti sér tækifærið í viðtali við Arnar Dan, kynni kvöldsins, og tilkynnti opinberlega um næstu bardagasýningu landsins – Atvinnuhnefaleikakvöld í Gamla Bío þann 10. apríl næstkomandi. Viðburðurinn mun marka tímamót í íslenskum hnefaleikum en hingað til hefur einungis verið barist í ólympískum hnefaleikum sem einnig má kalla áhugamannahnefaleika.
Af hverju núna?
Í viðtali við MMA Fréttir segist Kolbeinn vera sannfærður um að núna sé rétti tíminn til að berjast heima á Íslandi og eignast loksins heimavöll í hnefaleikum. Eins og bardagaáhugafólki er kunnugt hafa ýmsar dyr opnast í bardagasenunni. Það er búið að halda MMA-kvöld í tvígang, nýlega var íslenska Muay Thai Sambandið stofnað og núna sé tími kominn til að taka næsta skref og halda almennilegt atvinnumannahnefaleikakvöld.
Kolbeinn segir að meðbyrinn í bardagasenunni sé mikill og komi á góðum tíma á hans ferli þar sem hann berst núna við mikinn mótvind á ferlinum. Það hefur gengið illa fyrir Kolbein að fá andstæðing til að mæta sér í hringnum þar sem langflestir vænlegir andstæðingar neita að mæta honum án þess að fá háa fjárhæð greitt fyrir. Andstæðingur sem vanalega myndi biðja um X mikinn pening í laun sé farinn að heimta 3X í laun fyrir bardagann og er Kolbeinn þar með settur í afskaplega óþægilega stöðu og erfitt gengur að ganga frá samningum. Andstæðingarnir sjá ekki fram á að ná sigri gegn Kolbeini og vilja því fá vænlega útborgað í staðinn.
Kolbeinn, rétt eins og annað íslenskt bardagafólk, myndi njóta góðs af því að geta loksins barist heima fyrir og eignast langþráðan heimavöll. Þar með getur Kolbeinn og hans teymi staðið fyrir hnefaleikasýningum og skemmtunum fyrir aðdáendur og tekið keppnismálin í eigin hendur.
Lítið og hæfileikaríkt bardagakvöld fram undan
Stefnt er að því að hafa sjö bardaga á dagskrá í Gamla Bíói þann 10. apríl. Þar fá allir atvinnumennirnir okkar pláss á aðalhluta kvöldsins og brot af því besta sem við eigum úr áhugamannasenunni verður til sýnis í upphitunarhluta kvöldsins.
Kolbeinn er kominn með andstæðing fyrir kvöldið í Gamla Bíó. Andstæðingurinn að þessu sinni verður Austurríkismaðurinn Sasa Milenkovic (12 – 1) sem hefur sigrað 11 bardaga á ferlinum með rothöggi. Þetta er annar andstæðingurinn sem samþykkir að mæta Kolbeini á kvöldinu en sá fyrri þurfti að draga sig úr bardaganum vegna Visa-vandamála, sem enn og aftur undirstrikar hversu vandkvætt það getur reynst að fá andstæðing. Sasa Milenkovic er í fjórða sæti á styrkleikalista austurrískra þungavigtarmanna en hann barðist síðast í október í fyrra gegn Luka Stajic. Sasa sigraði bardagann með rothöggi í fyrstu lotu og hækkaði þar með KO hlutfallið sitt upp í 91,6%.
Kolbeinn og hans teymi eru að svo stöddu í viðræðum við WBC og má telja ansi líklegt að Kolbeinn og Sasa muni berjast upp á WBC International titil.
Að svo stöddu er ekki búið að staðfesta aðra andstæðinga á kvöldinu en búið er að staðfesta að Emin Kadri (2 – 0) og Valgerður Guðsteinsdóttir (7 – 8) munu einnig berjast á aðalhluta kvöldsins. Fyrstur til að stiga inn í hringinn og opna aðalhluta kvöldsins verður hins vegar frændi okkar frá Noregi, Brage Lange (8 – 0). Brage mun koma til Íslands þremur vikum fyrir bardagann og æfa sem sparrfélagi með Kolbeini áður en þeir berjast svo saman á þessu sögufræga kvöldi.
Upphitunarhluti kvöldsins mun byrja stuttu eftir að húsið opnar. Þar megum við eiga von á Ísaki Guðnasyni (HFK), Hafþóri Magnússyni (HFH) og Zalmai Jasur (HFK) sem allir þrír fá erlenda andstæðinga.
Úreld lög og atvinnufrelsi
Lög um hnefaleika hafa tekið breytingum síðustu áratugi. Voru hnefaleikar, sala á búnaði og þjálfun alfarið bönnuð árið 1956 og svo gerðar vægar breytingar sem tóku gildi 1990, þá sérstaklega hvað varðar sektir við brot á hnefaleikalögum. 2002 voru áhugamannahnefaleikar leyfðir og með því fylgdi leyfi fyrir sölu á búnaði, þjálfun, keppni og sýningahaldi. Að mati Kolbeins tók Hnefaleikasamband Íslands svo stórt skref á Ljósanótt í fyrra þegar gefin voru peningaverðlaun til boxara kvöldsins á fyrsta degi haustbikarmóts HNÍ í fyrra. Þar með hafi Hnefaleikasambandið undir formerkjum ÍSÍ opnað fyrir Prize Fighting á Íslandi. Bilið milli áhugamannahnefaleika og atvinnuhnefaleika er því orðið ansi smátt. Eini munurinn sé í raun og veru fjöldi lotna, búningar og utanumhald hvað varðar öryggi og heilsu keppanda sem er mun strangara í atvinnumennskunni og þá sérstaklega ef barist er upp á titil þar sem WBC setur miklar kröfur á mótshaldara um að gæta öryggis keppenda. Allir keppendur sem koma að sýningunni eru með réttindi og leyfi frá öðrum Norðurlöndum og eiga rétt á því að keppa og vinna á Íslandi sem og í upprunalandinu.
Skipuleggjendur kvöldsins hafa unnið markvisst að því að safna öllum leyfum sem nauðsynlegt sé að hafa fyrir slíkan viðburð og segja að þau séu öll komin í hús. Einnig séu viðræður um sjónvarpsútsendingu á lokastigi og má því búast við heljarinnar veislu 10. apríl!
Miðasala verður á tix.is og opnar á mánudaginn 2.mars





