HomeErlentLewis vs. Hokit bætist við Hvíta Hús kortið eftir ævintýralega atburðarás

Lewis vs. Hokit bætist við Hvíta Hús kortið eftir ævintýralega atburðarás

Derrick Lewis mun mæta Josh Hokit á Hvíta Hús korti UFC, Freedom 250, eftir að allt small saman á ótrúlegan hátt á UFC 327. Það byrjaði þegar Donald Trump spurði Dana White einfaldlega af hverju Lewis væri ekki á Hvíta Hús kortinu. White tók upp símann, hringdi strax í Lewis og fékk samþykki hans á staðnum.

Svo tók sagan aðra beygju. Eftir geggjaðan bardaga Josh Hokit gegn Curtis Blaydes, þar sem Hokit fór í algjört stríð, kom upp hugmyndin í beinni útsendingu þegar Joe Rogan spurði hvort það væri of seint að setja Hokit á Hvíta Hús kortið. Skömmu síðar var White kominn í samband við Hokit, á meðan hann var á leið í sjúkrabíl eftir bardagann, og Hokit sagði já. Þannig varð bardaginn til.

Hokit var nýbúinn að fara í einn brjálaðasta bardaga kvöldsins, ef ekki ársins og var alblóðugur og á leið í skoðun. Hann samþykkti þó að taka næsta verkefni strax gegn einum hættulegasta rothöggsmanni þungavigtarinnar.

Fyrir Lewis er þetta klassísk sena, hann fær símtal og mætir til leiks. Fyrir Hokit er þetta risastökk upp stigann, beint úr stríði yfir í stóran bardaga á einu stærsta sviði sem UFC hefur sett upp. Hvíta Hús kortið, eða Freedom 250 eins og það hefur verið kallað, verður haldið 14. júní þannig Hokit fær alls ekki langan tíma til að jafna sig eftir einn rosalegasta bardaga sem sést hefur í þungavigtinni.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið