HomeErlentMun Dustin Poirier berjast sinn lokabardaga á þessu ári ?

Mun Dustin Poirier berjast sinn lokabardaga á þessu ári ?

Dustin Poirier hefur löngum verið einn af uppáhalds bardagamönnum aðdáenda blandaðra bardagalista enda hefur hann barist marga stórkostlega bardaga en má þar nefna bardaga hans við Justin Gaethje, Conor McGregor og Michael Chandler en það er engan veginn tæmandi talning enda eru flestir bardaga Poirier góðir bardagar. Poirier hefur einu sinni sigrað belti í UFC en hann sigraði Max Holloway árið 2019 og var þá afhent tímabundið (e. Interim) léttvigtarbelti. Poirier hefur ekki komist nær því að vera óumdeilanlega besti bardagamaður sinnar deildar en hann hefur þrisvar keppt um titilinn í léttvigt UFC og tapað í öll skiptin, fyrst fyrir Khabib Nurmagomedov árið 2019, því næst fyrir Charles Oliviera árið 2021 og nú síðast gegn Islam Makhachev í júní 2024.

Poirier hefur ekki gefið upp vonina á því að vera afhentur titill sem besti bardagamaður sinnar deildar og sagði hann nýlega að hann væri orðinn 36 ára gamall og væri ekki að eltast við launaseðla á þessum tímapunkti. Sagði Poirier að hann ætlaði sér eitt tækifæri í viðbót á titlinum og kvaðst Poirier ekki ætla að lúffa heldur halda því til streitu og eftir að hann hefur fengið það tækifæri sagði Poirier að hanskarnir færu upp á hillu. Poirier sagði að lokum:

„Engar endurkomur, ekkert hvað ef bara eitt lokastríð í búrinu upp á titilinn. Mun ég hætta á toppnum eða verður þetta erfiðasta orrusta lífs míns? Hvernig sem fer mun ég gefa allt sem ég hef því meistarar gera það.“

Islam Makhachev er léttvigtarmeistari UFC og varði hann belti sitt nýlega gegn Renato Moicano þar sem Islam sigraði með uppgjafartaki í fyrstu lotu. Hvort Poirier fái annað tækifæri til titilbardaga verður að koma í ljós, hann hefur vinsældirnar meðal áhorfenda og bardagarnir hans eru vissulega skemmtilegir en það eru ekki margir bardagamenn sem fá titilbardaga á hverju ári, sérstaklega þar sem Poirier tapaði fyrir Islam í titilbardaga í júní 2024.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið