Hnefaleikafélög Kópavogs og Reykjavíkur ferðuðust til Porto í Portúgal síðustu helgi og tóku þátt á Porto Box Cup, stærsta boxmóti í heiminum. Sigurbergur Einar Jóhannsson sótti gullið fyrir HR og fengu klúbbarnir tveir sitthvort silfrið til viðbótar.
Hnefaleikafélag Reykjavíkur / WCBA tefldu fram fjórum boxurum á mótinu í Porto.
Sigurbergur Einar var sá eini sem átti bardaga fyrsta daginn og átti nokkuð auðvelt með þann andstæðing og stöðvaði dómarinn bardagann í annarri lotu.
Á degi tvö áttu þrír boxarar bardaga: William Ragnarsson, Hilmar Þorvarðarson og Sigubergur Einar Jóhannsson.
Hilmar steig fyrstur á svið en hann mætti spænska landsmeistaranum og því um mikið verkefni að ræða. Hilmar átti mjög góða spretti og þjarmaði vel að meistaranum en eftir harða viðureign stóð hinn spænski uppi sem sigurvegari en þetta var langtum besta frammistaða Hilmars hingað til og verður spennandi að fylgjast með honum.
Sigurbergur Einar átti aðra viðureign HR en hann gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn andstæðing með einróma dómaraákvörðun og var því kominn í úrslit með því að sína mikla yfirburði gegn báðum sínum andstæðingum.
William átti svo síðasta bardaga klúbbsins en þar mætti hann Vladimir Szymonik frá Sviss. Andstæðingurinn var líkamlega sterkur en William gerði sér lítið fyrir og stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa stýrt hringnum vel og passað að andstæðingurinn aðlagaði sig að leik William með því að halda fjarlægð og refsa þegar andstæðingurinn leitaðist eftir því að sækja.
Þannig varð að þrír keppendur HR myndu keppa í úrslitum á síðasta degi mótsins.
Neilas steig fyrstur á svið síðasta daginn og úr varð jafn bardagi. Neilas fékk hinsvegar blóðnasir í fyrstu lotu og þrátt fyrir að vera að taka yfirhöndina í annarri lotu stöðvaði dómarinn bardagann vegna blóðnasanna sem var mikið svekkelsi.
Sigurbergur Einar átti aðra viðureign HR í úrslitum en hann mætti þar sterkum Breta sem hafði sigrað sína andstæðinga einnig með miklu yfirburðum. Um var að ræða örvhentan andstæðing sem beitti því að refsa andstæðingum með counter. Sigubergur vissi þetta fyrir bardagann og vissi að ef honum myndi takast að setja Bretann á afturlappirnar myndi hann slá vopnin úr höndunum á honum. Það var nákvæmlega það sem gerðist og sigraði Sigubergur gull með einróma dómaraákvörðun. Vel það.
Að lokum átti William bardaga seint á mótinu en þar keppti hann við Malick Diop frá Spáni. Verulega sterkann andstæðing þrátt fyrir að vera lægri en William tókst vel í upphafi að takast á við pressuna hans en í annarri lotu lokaðist nef William og átti hann erfitt með öndun. Bardaginn var því stöðvaður og Diop stóð uppi sem sigurvegari en William hneppti silfur.
Hnefaleikafélag Kópavogs tefldi fram níu boxurum.
Fajer Ghazali keppti sinn annan bardaga á móti Breta og stóð sig vel en tapaði naumlega 2-1
Viktor Víkingur keppti á móti Spánverja og tapaði á klofinni dómaraákvörðun
Arnar Jaki keppti við Spánverja og tapaði með klofinni dómaraákvörðun
Kormakur Steinn keppti á móti sterkum Pólverja en tapaði á dómaraákvörðun
Hlynur Þorri sigraði Svía 3-0 í undanúrslitum en tapaði á móti Sviss í úrslitum og fékk silfur.
Arnar Gauti keppti á mót brons verðlaunahafa á EM og tvöföldum Spánarmeistara. Arnar var með mikla yfirburði í bardaganum en fékk blóðnasir og dómarinn stöðvaði bardagann.
Yahya Ghazali keppti við sterkan Svía og átti mjög góða frammistöðu en tapaði að lokum á dómaraákvörðun.
Zalmai Jasur keppti á móti öflugum Spánverja. Zalmai var yfir hjá dómurum þegar 20 sek voru eftir í þriðju lotu en þá labbaði Zalmai inn í skrokkshögg og náði ekki að jafna sig.
Ísak Guðnason keppti á móti Portúgalska meistaranum. Ísak átti mjög góða frammistöðu, dómararnir voru hliðhollir Portúgalanum þrátt fyrir virkilega sannfærandi frammistöðu og höfðu margir hlutlausir áhorfendur tal á því að þarna hefði verið skrítinn dómur á ferð.










