Það var lúmskt skemmtilegt APEX-kvöld um helgina þar sem Jared Cannonier mætti Caio Borralho í aðalbardaga kvöldsins. Bardaginn var þrususkemmtilegur allan tímann og endaði með einróma dómaraákvörðun til Borralho.
Þetta sama kvöld fóru fram úrslitaviðureignirnar í The Ultimate Fighter 32. Það er skömmustulegt að viðurkenna það, en það fór alveg fram hjá okkur þegar við hituðum upp fyrir kvöldið. TUF er skemmtilegt að því leyti að ungir og efnilegir bardagakappar fá að láta ljós sitt skína og gerðu þeir það svo sannarlega.
Það er svo ekkert UFC um næstu helgi en við fórum þá yfir málefni líðandi stundar í staðinn.