HomeErlentUFC 327: Procházka vs. Ulberg - Spáð í spilin fyrir lausan titilinn

UFC 327: Procházka vs. Ulberg – Spáð í spilin fyrir lausan titilinn

Jiří Procházka og Carlos Ulberg mætast í aðalbardaga kvöldsins á UFC 327 í Miami í kvöld/nótt þar sem lausi titillinn í léttþungavigt er undir. Þetta er bardagi sem gæti mótað deildina næstu misseri og samkvæmt stuðlunum hjá Coolbet er þetta nánast alveg galopið einvígi.

Coolbet setur Procházka örlítið fyrir ofan, 1.88 á móti 1.97 á Ulberg, sem segir allt sem segja þarf. Þetta er klassískt “pick ’em” einvígi. Procházka kemur með kaos og óútreiknanleika á meðan Ulberg er agaður og nákvæmur. Spurningin er einföld: nær Ulberg að halda þessu skipulögðu eða dregur Procházka hann inn í villtan bardaga?

Fyrir neðan aðalbardagann er kortið fullt af áhugaverðum viðureignum og stuðlar Coolbet gefa skýra mynd af því hvar traustið liggur.

Mateusz Gamrot er skýr favorit, 1.56 gegn Esteban Ribovics 2.50, þar sem glímuþungur stíll hans gæti ráðið ferðinni. Hann á sigra yfir Arman Tsarukyan og Rafael Fiziev og mætti síðast Charles Oliveira, þannig að hann hefur prófað sig gegn efstu mönnum deildarinnar. Ribovics hefur ekki enn brotið sér leið inn á styrkleikalistann, þó hann hafi vissulega látið taka eftir sér í skemmtilegum bardögum eins og gegn Daniel Zellhuber sem Fimmta Lotan valdi sem bardaga ársins 2024.

Aaron Pico er einn stærsti favorit kvöldsins, 1.32 gegn Patricio Pitbull 3.53. Pico hefur enn lítið sýnt í UFC eftir erfiða frumraun þar sem hann var rotaður af Lerone Murphy, en Pitbull kemur inn með góðan sigur gegn Dan Ige eftir slaka byrjun í deildinni.

Kevin Holland gegn Randy Brown er hins vegar algjört coin flip á Coolbet, 1.97 á Holland og 1.88 á Brown. Þetta er bardagi sem gæti farið hvoru megin sem er og líklega einn skemmtilegasti “value fight” kvöldsins fyrir þá sem skoða línurnar vel.

Í co-main bardaganum mætast Paulo Costa og Azamat Murzakanov þar sem Murzakanov er settur sem skýr favorit, 1.49 á móti 2.72 á Costa. Murzakanov er enn ósigraður en Costa gæti verið sprelllifandi hundur í þessu einvígi og líklega sterkasti andstæðingur hans til þessa. Þetta er jafnframt frumraun Costa í léttþungavigt eftir að hafa barist allan sinn UFC feril í millivigt.

Einn athyglisverðasti bardaginn á undirkortinu er Curtis Blaydes gegn Josh Hokit. Þar er Blaydes lítillega fyrir ofan, 1.83 gegn 2.02, en það sem hefur vakið athygli er hegðun Hokit í aðdragandanum. Hann hefur verið óvenju skrítinn í viðtölum og framkomu, sem vekur spurningar um hvar hausinn á honum er fyrir svona stóran bardaga. Það getur annað hvort þýtt að hann sé mjög öruggur með sig og hættulegur eða þá að eitthvað sé ekki alveg í lagi.

Þegar allt er sett saman er þetta kvöld sem snýst um breytingar. Nýr meistari verður krýndur og margir aðrir eru að berjast fyrir stöðu sinni rétt fyrir neðan toppinn. Coolbet stuðlarnir sýna að aðalbardaginn er hnífjafn, og það eru einmitt þannig bardagar sem enda oft á því að skilgreina heila deild.

Ef Procházka vinnur gæti hann tekið yfir svipað hlutverk og Alex Pereira hefur haft, þar sem fáir virðast geta stöðvað hann. Ef Ulberg vinnur opnast hins vegar fjöldi nýrra og spennandi möguleika í titilmyndinni á næstu misserum.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið