spot_img
Friday, January 31, 2025
Minigarðurinnspot_img
HomeErlentBardagamaður bjargar mótherja með því að halda aftur af lokahöggi (myndband)

Bardagamaður bjargar mótherja með því að halda aftur af lokahöggi (myndband)

Bardagamaður að nafni Ashton Thompson var heppinn að sleppa lifandi úr viðureign sinni við Ramon Shannon en þeir berjast fyrir bardagasamtökin Throne MMA. Shannon var að berjast sinn fyrsta áhugamannabardaga gegn Shannon í fluguvigt en bardaginn entist í 44 sekúndur þar sem Shannon hafði yfirburði.

Eftir 44 sekúndur sló Shannon Thompson niður með hægri krók og mátti greinilega sjá að Thompson steinrotaðist og féll meðvitundarlaus til jarðar. Shannon fylgdi Thompson eftir og rétti upp höndina líkt og hann væri að undirbúa að slá Thompson með hamarshöggi þar sem Thompson lá á striganum en Shannon hætti við á síðustu stundu. Ef myndband í frétt er skoðað má sjá Thompson kippast til þar sem hann liggur meðvitundarlaus í jörðinni, virkilega óhugnanlegar senur og má hann telja heilladísirnar sínar að Shannon fylgdi ekki á eftir með höggum í jörðinni.

Dean Lamb, starfsmaður bardagasamtakanna, hefur gefið út að Thompson sé við góða heilsu en hann var skoðaður af læknum á spítala eftir bardagann og eftir skoðun var honum hleypt heim.

spot_img
spot_img
spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið