Berserkir BJJ sendu frá sér 5 keppendur á Grappling Industries í London.
1500 manns voru á mótinu og 189 klúbbar. Berserkir stóðu undir nafni og gengu berserksgang á mótinu og náðu góðum árangri.
Hekla Dögg Ásmundsdóttir var skráð í 4 flokka og endaði með brons í Opna flokknum í NOGI. Tók svo 2. sæti eftir tap gegn Örnu, einnig úr Berserkjum, í GI. Hekla tók samtals 10 glímur þannig þetta var langur dagur hjá henni og miklar framfarir hjá henni.
Arna Diljá S. Guðmundsdóttir vann báða opna flokkana sína örugglega í GI og NOGI. Var innan við 2 mínútur með andstæðinga sína. Keppendur vantaði í flokkinn hennar þannig hún keppti í opnum flokkum í staðinn.
Þröstur Marel Valsson var einnig skráður í 4 flokka og tók 2. sæti í opnum flokk hvítbeltinga í GI. Hann tók svo gull í Master í Nogi og GI eftir skemmtilegar viðureignir. Virkilega jafnt í báðum flokkum þar sem 3 höfðu unnið hvorn annan í GI en Þröstur endaði með gullið.
Davíð Óskar Davíðsson keppti í opna flokknum og var sá eini til að skora stig á Ross Nicholls sem vann ADCC Trials 2018 með Kimura sweep en tapaði síðar á stigum. Hann keppti svo í master og sigraði 3 glímur með armbar og kimura örugglega en tapar úrslitum á aðeins 2 stigum. Voru það einu stigin sem Davíð fékk skorað á sig í flokknum.
Egill Blöndal hafði engan mótherja í fjólublátt -104 og ekki heldur í brúnt-svart þannig hann skráði sig í +104kg brúnt-svart. Hann sigraði alla 5 andstæðingana sína og fékk ekkert stig skorað á sig.
Berserkir BJJ enda daginn sem 7.besti klúbburinn af 189.
Yfir heildina virkilega flottur árangur og mjög miklar bætingar hjá hópnum.





