HomeBoxBjarni Ottósson varð Blue Boxari kvöldsins

Bjarni Ottósson varð Blue Boxari kvöldsins

Um helgina fór fram fyrsta umferð í Haustbikarmóti HNÍ. Í þetta skiptið var það Hnefaleikafélag Reykjanesbæjar sem tók að sér utan um hald en mótið var hluti af dagskrá Ljósanætur, bæjarhátíð Reykjanesbæjar.

Áhorfendur sem keyptu miða á mótið fengu tækifæri til þess að kjósa sinn uppáhalds bardagamann á deginum en það var heimamaðurinn Bjarni Ottosson sem fékk flest atkvæði og hlaut 100.000 kr. í verðlaun.

Bjarni mætti Álvaro Heredero López frá hnefaleikafélaginu Æsir (Mjölnir) í næstsíðasta bardaga dagsins. Bjarni lagði hanskana á hilluna fyrir þó nokkru síðan en ákvað að rifja upp gamla takta og taka þátt í mótaröðinni en það eru 10 ár síðan Bjarni barðist síðast.

Heimamaðurinn virtist þó engu hafa gleymt og sýndi hrikalega skemmtilega takta í bardaganum sem einkenndust af mikilli pressu og philly shell. Bjarni sigraði viðureignina með einróma dómaraákvörðun og eftir að hafa dóminerað bardagann nær allan tímann.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið