Íslenskir hnefaleikakappar héldu út fyrir landsteinana um helgina til Lettlands á hnefaleikamótið Olaines Kauss 2025 sem haldið er í bænum Olaines, rétt fyrir utan höfuðborgina Riga. Mótið er afar sterkt og þar mátti finna marga evrópumeistara og evrópumótskeppendur en margir eru þar komnir í undirbúningi fyrir næsta Evrópumeistaramót. Íslenski hópurinn fer heim með þrjú gull verðlaun af þessu sterka móti og voru það allt keppendur frá Bogatýr sem voru þar að verki.
180 keppendur frá 10 löndum voru skráðir á mótið sem stóð yfir í tvo daga. Ísland átti 16 keppendur: 7 frá Hnefaleikafélag Kópavogs, 6 frá Bogatýr og 3 frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur. Það voru Bogatýs mennirnir Viktor Zoega, Artem Siurkov og Oleksii Tatarenko sem unnu til gullverðlauna en Kormákur Steinn Jónsson frá Hnefaleikafélagi Kópavogs og Artem Tishkin frá Bogatýr komust einnig á pall með silfurverðlaun en þeir fóru beint í úrslit.
Viktor Zoega mætti Finnskum meistara á laugardeginum og sigraði á klofinni ákvörðun. Nikita þjálfari hans sagði að hann hafi verið mjög klókur og átt eina af sínum bestu frammistöðum. Hann mætti svo Lettneskum meistara í úrslitunum á sunnudeginum sem var mjög líkamlega sterkur en aftur sýndi Viktor mikil klókindi að sögn Nikita sem segir Viktor hafa tekið stökk upp um 2 “level” núna og þetta sé nýr Viktor sem við erum að sjá. Það verður spennandi að fylgjast með Viktori í bikarmótaröðinni en hann á bardaga við Nóel Frey Ragnarsson 20. september í annarri umferð sem fer fram í VBC.
Artem Siurkov sigraði Eistneskan meistara á laugardeginum með einróma ákvörðun. Hann mætti svo Finnskum andstæðingi í úrslitunum. Artem tók allar þrjár loturnar gegn Finnanum og sýndi að hann er að komast á mjög hátt stig í sportinu.
Oleksii Tatarenko fór beint í úrslit og mætti þar Írskum meistara en þeir börðust báðir á Evrópumeistaramótinu 2022. Oleksii átti gífurlega sterka frammistöðu að sögn Nikita þjálfara hans sem sagði hann hafa rústað honum, andstæðingurinn hafi ekki átt neinn séns, en allir dómarnir gáfu þetta til Tatarenko. Það hefur reynst erfitt að finna bardaga fyrir Oleksii á Íslandi sökum þess hversu góður hann er og hversu mikla reynslu hann hefur.
Kormákur Steinn Jónsson frá Hnefaleikafélagi Kópavogs fór beint í úrslit og mætti andstæðingi frá Lettlandi. Bardaginn var jafn að sögn Kjartans þjálfara hans: “ekki mikið sem skildi þá að” en Kormákur þurfti að sætta sig við silfrið. Artem Tishkin frá Bogatýr var að berjast sinn fyrsta bardaga á mótinu en hann fór beint í úrslit og mætti þar Úkraínskum andstæðingi. Artem sýndi góðan karakter að sögn Nikita og nú vita þeir meira hverju þeir þurfa að vinna í.
Mótið er mjög sterkt og voru margir Íslendingarnir að mæta mun reynslumeiri andstæðingum. Margir frá Hnefaleikafélagi Kópavogs voru að berjast í fyrsta skipti erlendis og einhverjir í fyrsta skipti yfir höfuð en andstæðingarnir voru sumir með vel yfir 100 bardaga. Sölvi Steinn Hafþórsson, með 9 bardaga undir beltinu, mætti Litháenskum andstæðingi með 165 bardaga undir sínu belti. Arnar Jaki Smárason (7 bardagar) mætti ríkjandi Evrópumeistara sem var svo valinn besti boxari mótsins. Viktor Örn Sigurðsson stóð sig mjög vel í sínum bardaga gegn Armenskum andstæðingi en einn dómarinn gaf sigurinn í hornið hans. Yahya Ghazali (2 bardagar) mætti Litháenskum meistara með 90 bardaga undir beltinu og einn dómarinn dæmdi bardagann jafnan.
Auk ofangreinda hnefaleikakappa kepptu eftirfarandi menn einnig á mótinu: Gabríel Marínó Róbertsson og Mihail Fedorets frá Bogatýr, Sigurbergur Einar Jóhannsson, Hilmar Þorvarðarson og Ronald Bjarki Mánason frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur og Hlynur Þorri Helguson og Fajer Ghazali frá Hnefaleikafélagi Kópavogs.
Gabríel Marínó tapaði á klofinni ákvörðun gegn Lattneskum meistara og sagði Nikita þetta hafa verið æsispennandi bardaga: “Fight was crazy, non-stop all 3 rounds, not even one second break from throwing punches.” – Það má finna umsögn um mótið frá Nikita í nýjasta þætti af Fimmtu Lotunni.








