Fyrrverandi UFC millivigtarmeistarinn Chris Weidmann hefur tilkynnt að hann muni hætta að berjast, a.m.k. innan UFC. Weidmann greindi frá því í “weigh-in” þættinum fyrir vigtunina á UFC 311. Aðeins þeir allra nánustu honum vissu að þessi tilkynning væri á leiðinni.
“Since I decided to get into this sport, since 2009, the goal was to be a UFC fighter. Then immediately, the goal was to be a UFC champion,” Weidman said on the weigh-in show. “Fourteen years later, I’m here to tell you that I’m hanging up the gloves in the UFC. I no longer will be fighting in the organization that changed my life in so many ways.”
Chris Weidmann sem braut á sér löppina eftirminnilega í bardaga gegn Uriah Hall sneri tilbaka rúmum 2 árum seinna og barðist 3 bardaga til viðbótar á síðasta eina og hálfa ári og vann einn þeirra. Hann barðist síðast gegn Eryk Anders í desember sl. og var rotaður í 2. lotu. Hann hefur nú ákveðið að kalla þetta gott.

Chris Weidmann varð UFC millivigtarmeistari þegar hann sló Anderson Silva í rot á UFC 162 í júlí 2013. Hann varði svo beltið gegn Anderson Silva aftur hálfu ári seinna en Silva fótbrotnaði illa eftir að hafa sparkað lágsparki í Weidmann eins og frægt er. Hann varði beltið tvisvar til viðbótar gegn Lyoto Machida 2014 og Vitor Belfort 2015 áður en hann missti það yfir til Luke Rockhold sem kláraði hann í 4. lotu í titilviðureign þeirra í desember 2015 á því afdrifaríka kvöldi UFC 194 þegar Conor rotaði Aldo eftir 13 sekúndur.
“It’s been a ride, from being an undefeated world champion and being able to beat one of the greatest of all time in Anderson Silva, and then being able to defend my belt three times against some of the greatest legends of the sport,” Weidman said. “… I’m just very grateful. It’s a weird one. I’ve been calling myself a UFC fighter since 2011, and today maybe for the first time I can’t say that.”
Eftir að missa beltið átti Weidmann eftir að berjast 10 sinnum í UFC en hann sigraði aðeins 3 af þeim. Í apríl 2021 í bardaga gegn Uriah Hall á UFC 261 lennti hann sjálfur í nákvæmlega eins fótbroti og Anderson Silva hafði lent í á móti honum og héldu margir að ferlinum væri lokið þá. Weidmann sneri hins vegar aftur og þó hann hafi ekki náð sömu hæðum á nýjan leik gladdi það MMA áhugamenn mikið að sjá hann í nokkur skipti í viðbót.
En bardagarnir verða ekki fleiri, a.m.k. ekki innan UFC.
“… I’m opening up a new chapter in my life, and I’m excited about the future,” he said. “I’m leaving the door open for big opportunities out there. But we’re moving on to see my life develop in different ways.”






