Forseti UFC, Dana White, hefur opinberlega breytt skoðun sinni gagnvart bantamvigtarmeistaranum Merab Dvalishvili og lýst yfir mikilli aðdáun á vinnusemi og hugarfari hans.
Dvalishvili stimplaði sig í sögubækurnar með því að verða sjöundi bardagamaðurinn í sögu UFC og jafnframt sá fyrsti undir 170 pundum til að verja titil sinn þrisvar sinnum á einu ári, þegar hann sigraði Cory Sandhagen á UFC 320. Sigurinn tryggði honum líklega titilinn Fighter of the Year 2025.
Dana White hafði áður gagnrýnt Dvalishvili fyrir að skorta „drápseðli“ í bardögum sínum og fyrir ákvörðunartöku sem hann taldi of varfærna, hefur nú skipt um skoðun.
„Mig tók smá tíma að venjast Merab, en ég er mjög hlýr gagnvart honum núna … Ég elska þetta hugarfar. Hann vill verða fyrsti maðurinn til að verja titilinn fjórum sinnum á einu ári. Þegar þú horfir á það sem hann hefur gert og hvernig hann hefur sannað sig sem meistari, þá er það virkilega stórkostlegt.“
White tilkynnti jafnframt að Dvalishvili muni snúa fljótt aftur í búrið og verja beltið í endurleik hans gegn Petr Yan í aðalbardaga UFC 323, sem fer fram 6. desember 2025 í T-Mobile Arena í Las Vegas. Ef hann vinnur þann bardaga verður hann fyrsti bardagamaður í sögu UFC til að verja titil fjórum sinnum á sama ári — árangur sem myndi setja hann í umræðuna sem einn af fremstu bardagamönnum ársins.
Auk þess mun bardagakvöldið innihalda titilbardaga í fluguvigt milli Alexandre Pantoja og Joshua Van.
Dvalishvili, sem gengur undir viðurnefninu The Machine, hefur með yfirburðum sínum og stöðugleika unnið álit aðdáenda, fjölmiðla og nú einnig Dana White sjálfs.





