HomeFimmta LotanE. 169. UFC 320 & Oliveira vs. Gamrot ásamt Ólafi Alexander

E. 169. UFC 320 & Oliveira vs. Gamrot ásamt Ólafi Alexander

UFC 320 sveik engan um helgina en Alex Pereira rotaði Magomed Ankalaev eftir 80 sekúndur í fyrstu lotunni og sótti léttþungavigtarbeltið sitt tilbaka eftir að hafa misst það yfir til Ankalaev fyrr á árinu. Merab Dvalishvili varði bantamvigtarbeltið sitt í þriðja skipti, nú gegn Cory Sandhagen sem hann sigraði á dómaraákvörðun. Jiri Prochazka stal senunni þegar hann rotaði Khalil Rountree jr. í þriðju lotunni eftir að hafa tapað fyrstu tveimur afgerandi. Youssef Zalal heldur áfram að subba menn og var ekki langt frá því að brjóta hendina á Josh Emmett sem tappaði munnlega. Joe Pyfer sótti einnig uppgjafartak og sýndi og sannaði hversu mikið býr í honum.

Næstu helgi verður UFC bardagakvöld haldið í Rio í Brasilíiu þar sem heimamaðurinn Charles Oliveira mætir Mateusz Gamrot en upphaflegi andstæðingurinn, Rafael Fiziev, þurfti að draga sig úr keppni vegna meiðsla. Nokkrir aðrir molar eru á cardinu og stefnir í góða skemmtun.

Ólafur Alexander stofnmeðlimur Fimmtu Lotunnar mætti í studíóið og ræddi við Bigga Bombu í fjarveru Nonna Sleggju sem var skipaður í einagrun vegna gruns um veggjalúsar (og flatlúsar líka).

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið