Alex “Poatan” Pereira sýndi af hverju hann er einn hættulegasti bardagamaður heims þegar hann rotaði Magomed Ankalaev í fyrstu lotu í aðalbardaga UFC 320. Með sigri sínum endurheimti Pereira léttþungavigtarbeltið í UFC eftir að hafa tapað því fyrir Ankalaev fyrr á árinu.
Pereira hóf bardagann af mikilli ákefð og setti strax pressu á Rússann. Pereira setti mikinn kraft í höggin sín og Ankalaev átti erfitt með að eiga við þau. Að lokum lenti Pereira þungu hægri yfirhandarhöggi og Ankalaev skaut í örvæntingafulla fellu sem Pereira stöðvaði. Pereira tryggði topp stöðuna og kláraði bardagann með góðum höggum í gólfinu og olnbogum sem neyddi dómarann til að stöðva bardagann eftir aðeins 80 sekúndur.
Eftir bardagann sagði Pereira að hann hefði líklega brotið fótinn í upphafi bardagans en ætlaði samt að klára verkið. „Ég fann að eitthvað small í fætinum, en þegar adrenalínið tók yfir þá skipti það engu máli,“ sagði hann í viðtali eftir bardagann.
Þetta var magnað endurkomuverk fyrir Brasilíumanninn sem hafði tapað fyrir Ankalaev með dómaraákvörðun í fyrri viðureign þeirra. Nú snéri hann taflinu við á eftirminnilegan hátt og tryggði sér beltið á ný með einum áhrifamesta sigri ársins.
Fyrir Ankalaev var þetta sársaukafullt tap eftir langa sigurgöngu í deildinni. Hann hafði ekki tapað bardaga í átta ár en fékk engu að síður engan tíma til að finna taktinn gegn Pereira sem lét höggin tala.
Pereira hefur nú staðfest stöðu sína sem ein stærsta stjarna UFC. Hann hefur unnið titla í tveimur þyngdarflokkum og virðist ekki hægja á sér. Spurningin nú er hvort hann verji beltið sitt næst eða fylgi draumi sínum um að færa sig upp í þungavigt.





