Kolbeinn „The Icebear“ lauk læknisskoðun og vigtun í gær ásamt andstæðingnum sínum Mika Mielonen. Kolli var 116,3 kg daginn fyrir keppni og stóðst læknisskoðun án vandkvæða. Kolli og Mika munu mætast í hringnum milli kl. 18:00 – 19:00 og verður sýnt frá viðburðinum í beinni útsendingu á Minigarðinum. Kolli gaf sér tíma í stutt viðtal við MMA-Fréttir þar sem það varð ljóst að Kolli ætlar sér að rota Mika.
Mika Mielonen gaf sér einnig tíma til að kynna sig fyrir Íslendingum. Hreinskilnislega sagt þá er Mika hrikalega fínn gaur sem tekur lífinu ekki óþarflega alvarlega.