spot_img
Wednesday, March 4, 2026
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeInnlentFimm meistarar krýndir á Glacier Fight Night 2

Fimm meistarar krýndir á Glacier Fight Night 2

Glacier Fight Night var haldið í annað skiptið í Framheimilinu í gærkvöldi. Fimm titilbardagar voru á dagskránni og því höfum við nú meistara í fimm þyngdarflokkum. Það verður spennandi að sjá hvort beltin verði varin á næsta viðburði en undir lok kvölds var tilkynnt um næsta viðburð, Glacier Fight Night III verður haldið 3. október.

Kvöldið byrjaði ekki vel fyrir íslensku bardagamennina en fyrstu fimm bardagar kvöldsins féllu allir með gestunum og horfðu íslenskir áðdáendur á sína menn ýmist tekna út með tæknilegum rothöggum eða uppgjafartökum. Það var hins vegar Mikael Aclipen sem sneri stöðunni við og sótti fyrsta íslenska sigurinn á kvöldinu með rear naked choke uppgjafartaki í annarri lotu. Mikael var að snúa tilbaka eftir slæm meiðsli og voru íslenskir bardagaáðdáendur mjög spenntir fyrir endurkomu hans.

Eftir það var komið að fyrsta titilbardaganum, í bantamvigt kvenna, þar sem Hekla María Friðriksdóttir mætti Þjóðverjanum Kathrin Haberle. Kathrin Haberle sigraði viðureignina á einróma ákvörðun og sýndi frábæra takta. Hekla átti í miklum erfiðleikum með Kathrin standandi og gerði Kathrin vel að verjast fellum og uppgjafartakstilraunum Heklu. Hekla var ekki langt frá því að ná armbar uppgjafartaki í annarri lotu en Kathrin lifði það af og Hekla náði ekki miklum meiri árangri restina af bardaganum. Kathrin Haberle er því Glacier Fight Night meistari í bantamvigt kvenna.

Logi Geirsson var næstur inn í búr í titilbardaga millivigtarinnar en þar mætti hann Frakkanum Theo Romary. Logi sýndi algjöra meistaratakta í bardaganum og kláraði Romary með sjaldséðu uppgjafartaki Ruotolotine sem er nefnt eftir tvíburabræðrunum Kade og Tye Ruotolo en uppgjafartakið er í grunninn arm triangle choke að aftanverðu en mikið afl aftan á hálsin lætur þetta virka ekki ósvipað og guillotine, nema að aftanverðu.

Næsta viðureign var meðal mestu reynsluboltanna á viðburðinum en Vitalii Korshak og Thomas Murris voru með samanlagða 25 bardaga reynslu komandi inn í þennan. Vitalii sigraði með miklum yfirburðum og tókst að klára Murris með höggum í gólfinu í þriðju lotu. Vitalii er þar með orðinn léttvigtarmeistari og bætti MMA metið sitt í 9-0.

Viktor Gunnarsson og Caleb Mullin mættust fyrir bantamvigtartitilinn í spennandi bardaga sem endaði á klofinni dómaraákvörðun. Viktor Gunnars fékk sigurinn og þar með orðinn bantamvigtarmeistari. Viktor sýndi ekki aðeins frábæra takta í bardaganum sjálfum heldur átti hann einnig stórkostlegt augnablik á hljóðnemanum í viðtalinu við Jón Kristófer frá MMA Fréttum og tilkynnti svo að hann væri búinn með áhugamennskuna og atvinnumennskan væri næst á dagskrá.

Í aðalbardaga kvöldsins mætust Hákon Örn Arnórsson og Ali Albazi en Ali Albazi sýndi frábæra takta og sigraði Hákon með sannfærandi hætti. Hákon virtist ekki alveg eiga svör við sterku glímunni hans Ali og eyddi miklum parti af bardaganum undir í slæmum stöðum. Hákon virkaði þó hættulegur þegar hann fékk tækifæri á að sveifla höndunum en fellurnar hans Ali reyndust bara Hákoni of mikið. Hákon var tilfinningaríkur og einlægur í viðtalinu við Jón Kristófer beint eftir bardagann, þakkaði þjóðinni fyrir stuðninginn og lofaði að snúa tilbaka sterkari.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið