HomeFimmta LotanFimmta Lotan hitaði upp fyrir UFC 311 og fékk Emin Kadri í...

Fimmta Lotan hitaði upp fyrir UFC 311 og fékk Emin Kadri í spjall.

Fyrsta PPV ársins er um helgina. V-veisla! Ef að allt fer vel þá þarf ekki að færa sýninguna um stað en skógareldarnir í Los Angeles setja kvöldið í örlitla hættu. En bardagarnir eru alls ekki af verri endanum og ættu allir glímuáhugamenn að njóta sín vel á laugardaginn kemur. Islam Makhachev mætir Arman Tsarukyan í aðalbardaga kvöldsins og Merab Dvalishvili og Umar Nurmagomedov mætast í co-main event.

Yonatan Francisco úr keppnisliði Reykjavík MMA fer yfir málin með okkur og gefur sitt innsæi inn í bardagana.

Að því loknu förum við yfir UFC-Apex kvöldið frá því um síðustu helgi sem var topp skemmtun. Röthögg, dómaraskandall og ófyrirséð uppgjafartak. Allt á sínum stað.

Spjall vikunnar er með stjörnudreng Hnefaleikafélags Kópavogs, Emin Kadri Eminson. Emin er þriðji virki atvinnuhnefaleikamaður landsins og er 1 -0 sem stendur. Þessi stórskemmtilegi karakter gaf sér tíma til ræða nýju verkefnin sín, ævintýri hnefaleikalífsins og lífið í Las Angeles.

Fimmta Lotan er líka á Youtube!

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið