Global Fighting League (GFL) eru ný bardagasamtök sem stefna á að halda fyrsta viðburðinn sinn í apríl á þessu ári. GLF er með áætlanir um að stokka upp í MMA-senunni með nýju greiðslufyrirkomulagi og nýjum þyngdarflokkum til að koma í veg fyrir þyngdarniðurskurð stuttu fyrir bardaga og til að tryggja fjárhagslegt öryggi keppenda sem skrifa undir fyrir stofnunina. GFL hefur tekist að festa á samning þó nokkra eldri og þekkta UFC-keppendur og var síðast tilkynnt um að Holly Holm hafi gengið í þeirra raðir eftir að hafa skilið við UFC.
Spekingar eru ekki allir bjartsýnir um komu og framtíð GFL og hafa samtökin verið sögð vera DOA eða Dead on Arrival.
GFL hefur ekki enn haldið bardagakvöld en fulltrúar hafa verið duglegir við að tilkynna spennandi nöfn sem þeir segja hafa skrifað undir hjá samtökunum. En núna hafa menn stigið fram og sagst ekki hafa skrifað undir hjá samtökunum þrátt fyrir að GFL hafi tilkynnt um samning og undriskrift, núna síðast var það sjálfur sykurinn Rashad Evans sem tjáði sig um málið.
Snemma í desember á síðasta ári birti GFL á vefsíðu sinni að þeir hefðu fengið undirskriftina hans Rashads Evans á blað og að hann yrði hluti af GFL. Rashad er um þessar mundir að undirbúa sig fyrir hnefaleikabardaga gegn Rampage Jackson, sem var furðulostinn yfir því að sjá Evans á lista GFL. Rashad þvertekur fyrir það að hafa skrifað undir hjá GFL og staðfestir að hann ætli enn að mæta Jackson í hringnum.
GFL tilkynnti fyrirkomulagið á keppandalista í nótt. Það er orðrómur um að fleiri bardagamenn hafi ekki gefið samþykki sitt fyrir því að vera á skrá og séu í raun ekki búnir að skrifa undir.
Um er að ræða 6 lið víða um heiminn og eru ansi mörg fræg nöfn í hverju liði fyrir sig.
Team Dubai telur meðal annars Tyron Woodley, Abubakar Nurmagomedov, Luke Rockhold og Derek Brunson.
Team Los Angeles inniheldur Sage Northcutt, Tony Ferguson, Urijah Faber, Aspen Ladd, Ray Borg, Frank Mir og Cunthia Calvillo.
Team Miami fær Paige VanZant. Cat Zingano, Hector Lombard, Thiago Santos og Robelis Despaigne.
Þetta er ekki tæmandi yfirferð á GFL og hverju má búast við frá þeim. En nöfnin og fyrirkomulagið er spennandi og lofar góðu. Á hinn bóginn eru ansi margir á listanum komnir yfir 35 ára aldurinn og því spurning hversu mikla flugeldasýningu GFL getur boðið upp á.







