HomeErlentGlobal Fight League upplýsir bardagamenn sína um fyrirkomulag næstu mánaða

Global Fight League upplýsir bardagamenn sína um fyrirkomulag næstu mánaða

Ný og spennandi bardagasamtök GFL hafa kynnt hvernig bardagafyrirkomulag þeirra mun vera en í janúar var kynnt að alls væru sex lið í samtökunum og þá völdu þjálfarar hvers liðs bardagamenn í janúar. Þá hefur einn af stofnendum GFL upplýst bardagamenn samtakanna um að ef bardagamenn sem samningsbundnir eru við samtökin vilja losna undan samningi þurfi þeir aðeins að koma til sín með þá ósk sína og hefur hann gefið í skyn að það þjóni hag beggja aðila að aðeins séu samningsbundnir bardagamenn sem vilja berjast undir merkjum GFL.

GFL ætla að hafa bardagatímabil sem skiptist í venjulegt tímabil (e. regular season) og útsláttarkeppni (e. playoffs). Á venjulegu tímabili munu liðin sem hvert og eitt ber heiti borgar sem haldinn verður viðburður í, þ.e. Los Angeles, New York, London, Miami, Dubai og Sao Paulo. Í apríl eru samtökin með bardagakvöld í Los Angeles, í maí verður viðburður í New York, í júní verður haldinn viðburður í London, í júlí verður haldinn viðburður í Miami, GFL ferðast til Dubai í ágúst og heldur viðburð og að lokum verður haldinn viðburður í Sao Paulo í september.

Samkvæmt minnisblaði sem eigendur GFL dreifðu til bardagamanna mun helmingur af bardagamönnum samtakanna berjast á hverjum stað fyrir sig en samkvæmt því má ætla að bardagamenn muni berjast annan hvern mánuð að meðaltali.

Fjögur lið komast í útsláttarkeppni samtakanna í hverjum þyngdarflokki og er búist við því að haldið verði titilbardagakvöld í nóvember þar sem GFL mun krýna meistara í öllum eða flestum þyngdarflokkum.

Ekki er ljóst hvernig ákveðið verður um hvaða bardagamenn berjast hverju sinni en eigendur samtakanna hafa gefið í skyn að þeir muni para saman bardagamenn.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið