Í nótt varð ljóst að aðalbardagi kvöldsins á UFC 311 yrði Islam Makhachev gegn Renato Moicano eins og kemur fram í frétt MMA-frétta frá því í nótt sem er neðst í fréttinni.
Islam og Moicano mættust augnliti til augnlitis í nótt, í fyrsta sinn frá því að tilkynnt var um að Moicano myndi stíga inn fyrir Arman Tsarukyan vegna meiðsla þess síðastnefnda. Það var spennuþrungið andrúmsloft þar sem þeir mættust og ljóst að Moicano kemur inn í bardagann fullur sjálfstrausts eins og hann á að sér að vera.
Joe Rogan spurði Islam hvort hans skipulag hafi breyst eitthvað við það þessa skindilegu breytingu á mótherja en Islam kvað svo ekki vera. Islam sagði að planið væri nákvæmlega það sama, rústa mínum andstæðin ekkert annað sama hver er fyrir framan mig, byrjum þetta.
Joe Rogan spurði Moicano út í bardagann og hversu snökkt hann bar að og sagði Moicano að honum væri alveg sama „ég hef ekki efni á því að tapa og það er sannleikurinn“ sagði Moicano. Sagði Moicano þá að það skipti ekki máli hvort hann væri að berjast við meistarann eða einhvern annan, hann myndi sigra.
Bardaginn fer fram í nótt og er kvöldið haldið í the Dome en fyrir kvöldið var mikil spenna fyrir bardaga Islam gegn Tsarukyan en upprisa Moicano undanfarin ár bjargar kvöldinu enda einn mest spennandi bardagamaðurinn í léttvigtinni í dag.






