HomeInnlentJhoan Salinas enn ósigraður eftir erfiðan bardaga gegn einu helsta stjörnuefni Breta

Jhoan Salinas enn ósigraður eftir erfiðan bardaga gegn einu helsta stjörnuefni Breta

Jhoan Salinas mætti Will Gibson á Caged Steel 42 sem fram fór í gærkvöldi í Doncaster, Englandi. Bardaginn fór allar þrjár loturnar og þurftu báðir menn að grafa djúpt og leggja allt í sölurnar í þessu fimmtán mínútna stríði.

Þetta var annar atvinnumannabardagi Jhoan Salinas en hann sigraði þann fyrri með guillotine hengingu í fyrstu lotu og hafði því aldrei áður farið allar fimmtán mínúturnar sem fullur MMA atvinnumannabardagi er. Salinas byrjaði mjög sterkt og tók fyrstu lotu nokkuð sannfærandi. Will Gibson var þó alls ekkert lamb að leika sér við og voru glímu átökin milli þeirra tveggja mjög skemmtileg og krefjandi fyrir báða menn.

Í annarri lotu var Salinas ekki langt frá því að klára Gibson með kimura uppgjafartaki eins og sjá má á myndbandinu sem fylgir en mörgum viðstöddum þótti ótrúlegt að Gibson skyldi ekki tappa út. Gibson tókst líka að koma sér í góðar stöður en helsti munurinn á þeim var að Salinas var meira að leitast eftir að valda skaða eða sækjast eftir uppgjafartaki þegar hann komst í góðar stöður á meðan Gibson reyndi aðallega að halda í góðu stöðurnar sem hann kom sér í eða jafnvel nýta þau augnablik til hvíla sig og láta Salinas bera þyngd sína.

Gibson kom þó sterkur inn í þriðju lotu og tók hana líklega í augum dómarana en allir dómarar voru að lokum sammála um 29-28 sigur Salinas, semsagt að Salinas hefði tekið tvær lotur og Gibson eina. Salinas virtist þó ekki of viss um að sigur sinn hafi verið réttmætur þegar hann var tilkynntur sem sigurvegari, kannski þar sem Gibson átti svona sterka þriðju og síðustu lotu bardagans.

Þetta var búið að vera langt ferli fyrir Salinas, hann átti upphaflega að berjast í desember sem frestaðist þar til núna um miðjan mars og æfingabúðirnar fyrir bardagann af þeim sökum lengst. Hann sagði í viðtali við MMA Fréttir eftir bardagann að stefnan væri að berjast a.m.k. einu sinni í viðbót á þessu ári, jafnvel tvisvar, svo áhugavert verður að fylgjast með hvernig árið hjá honum þróast.

Auk Salinas börðust þrír aðrir bardagamenn frá Reykjavík MMA. Vitalii Korshak sigraði Ali Albazi fyrir áhugamanna léttvigtartitil Caged Steel en Tiago Oliveira og Haraldur Arnarson þurftu að sætta sig við ósigur í þetta skiptið. Bardagakvöldið var sýnt í beinni útsendingu í Mini Garðinum en streymið var slæmt og klikkaði alveg á stórum köflum. Reykjavík MMA redduðu hins vegar málunum og hófu sitt eigið lifandi streymi í gegnum Instagram sem var sett upp á stóra skjáinn í áhorfspartíinu í stað streymisins frá Caged Steel.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið