Það stóð til að þrír bardagamenn Reykjavík MMA myndu berjast á Caged Steel 42 laugardaginn nk. í Doncaster, Englandi en fjórði bardaginn bættist við með aðeins nokkurra daga fyrirvara. Það er viðureign tveggja Glacier Fight Night meistara, en Vitalii Korshak mun mæta Ali Albazi í titilbardaga léttvigtarinnar, en samið var um 75kg takmark.
Bæði Vitalii og Ali sigruðu sína titilbardaga og urðu meistarar á Glacier Fight Night 2 sem haldið var 28. febrúar og eru því báðir menn að snúa mjög fljótt tilbaka í búrið. Vitalii sigraði Thomas Murris með miklum yfirburðum fyrir léttvigtartitil GFN á meðan Ali Albazi sigraði Hákon Örn Arnórsson í aðalbardaga kvöldsins fyrir fjaðurvigtartitilinn. En aðeins annar þeirra mun enda uppi sem léttvigtarmeistari Caged Steel á laugardaginn.
Bæði Vitalii og Ali hafa einu sinni áður barist á Caged Steel. Ali þreytti MMA frumraun sína á Caged Steel 32 í maí 2023 þar sem hann mætti Baldri Sigurðssyni frá Reykjavík MMA og kláraði hann með rear naked choke í annarri lotu. Vitalii mæti Laurence Charnock á Caged Steel 39 í mars í fyrra og sigraði á einróma dómaraákvörðun eftir mjög sannfærandi frammistöðu gegn sterkum andstæðingi sem kom inn í bardagann ósigraður með 4-0 áhugamannamet.
Bæði Vitalii og Ali eru sterkir glímumenn eins og þeir sýndu á Glacier Fight Night og hafa í raun sýnt trekk í trekk. Vitalii er ósigraður sem áhugamaður í MMA með níu sigra og enn ósigraður. Ali hefur svipaða reynslu en hann er einnig með níu sigra á ferlinum, en þrjá ósigra einnig. Það verður áhugavert að sjá þá tvo takast á í glímunni eða þá að glímugeta beggja aðila núlli út ógn hvors annars og bardaginn haldist standandi. Ali sýndi ágæta striking takta gegn Hákoni og hafði Bjarki Þór Pálsson, þjálfari Hákons, orð á því í nýjasta þætti Fimmtu Lotunnar að hann hafi komið sér á óvart. Vitalii er ekki slæmur striker heldur en hann hefur verið að æfa og keppa í hnefaleikum með Bogatýr undir Nikita Stepanovs samhliða MMA ferlinum og m.a. orðið bikarmeistari og keppt á Icebox.
Auk Vitalii eru þrír aðrir bardagamenn frá Reykjavík MMA að berjast en þeir eru allir atvinnumenn. Það er Jhoan Salinas sem mætir Will Gibson, sem hefur verið auglýstur sem einn efnilegasti bardagamaður Bretlands, og er bardaginn á milli þeirra aðalbardagi kvöldsins. Einnig snýr Haraldur Arnarson tilbaka og mætir Andy Baker sem er að þreyta frumraun sína sem atvinnumaður en Haraldur er á leið í sinn fjórða atvinnumannabardaga. Það er svo Tiago Oliveira sem mætir Franklin Esoe.
Caged Steel 42 verður sýnt í beinni útsendingu í Mini Garðinum og einnig er hægt að kaupa PPV streymi.






