Bardaginn á milli Losene Keita og Patricio Pitbull á UFC bardagakvöldinu í París síðustu helgi féll niður aðeins sólarhring fyrir viðburðinn þegar að Losene Keita náði ekki vigt. Keita átti þrjú pund eftir þegar líkaminn hans sagði stopp og svitnaði ekki meira.
Keita, sem átti að stíga í búrið í sínum fyrsta UFC bardaga, missti vigt og var þar með tekinn af dagskránni. Þetta var mikið áfall fyrir kvöldið þar sem margir höfðu beðið spenntir eftir komu hans í UFC. Pitbull, margfaldur fyrrverandi meistari í Bellator og einn reyndasti bardagamaður fjaðurvigtarinnar, stóð því eftir án mótherja og fékk ekki að berjast í þetta sinn.
Myndband birtist á samfélagsmiðlum þar sem Keita sést gráðbiðja Pitbull um að taka bardaganum þrátt fyrir að hann hafi ekki náð vigtinni. Keita segist vita að hann hafi klúðrað málunum en þetta sé lífið hans, hann hafi reynt allt en hann svitnaði ekki meira. Keita bauð honum helminginn af launum sínum en venjan er að gefa andstæðingnum 20% þegar atvik eins og þetta kemur upp. Pitbull svaraði að hann hafi gert það sem hann hafi átt að gera og þetta væri ekki honum að kenna. Pitbull sagði honum að lokum að færa sig upp í léttvigt.
Þetta hefði verið stór viðureign í fjaðurvigt þar sem Keita hefur vakið mikla athygli í Evrópu og Pitbull sóttist eftir því að sanna sig í UFC. Nú þarf UFC að finna nýjan bardaga fyrir Pitbull en Dana White hefur greinilega tekið þessu illa því Keita var leystur undan samningi og fáum við því miður ekki að sjá hann berjast í UFC, a.m.k. ekki á næstunni. Það er vert að taka það fram að þetta er í fyrsta skipti á ferlinum sem Keita nær ekki vigt.





