Kolbeinn Kristinsson hefur gefið út staðfestingu um næsta bardaga. Ísbjörninn mun mæta Venesúela manninum Pedro Martinez í átta lotu bardaga. Hnefaleikakvöldið Steel Ring verður haldið þann 29. nóvember í Oulu, Finnlandi.
Þetta verður annar bardagi Kolbeins á árinu en hann kom, sá og sigraði í Nurnberg fyrr á árinu. Þar varð Kolbeinn WBF heimsmeistari í þungavigt. Kolbeinn sigraði Þjóðverjann Mike Lehnis eftir 6 harðar lotur en sá þýski neitaði að koma út úr horninu sínu við upphaf sjöundu lotu. Kolbeinn hafði þá náð algjörum tökum á bardaganum eftir að hafa erfiða byrjun.
Kolbeinn hóf æfingarbúðirnar sínar í október enda var hann alltaf ákveðinn í að berjast aftur á árinu en andstæðingurinn var þá ekki staðfestur. Þó nokkuð margar viðræður hafa átt sér stað milli Kolbeins og mótshaldara úti um allan heim eftir sigurinn í Þýskalandi. Til að halda sér virkum á meðan rétta tilboðið kemur mun okkar tvöfaldi þyngdameistari stiga í hringinn gegn Pedro Martinez í Finnlandi, sem er nokkurs konar heimavöllur fyrir Kolbein enda hefur hann barist átta sinnum áður þar í landi.
Pedro Martinez er 41 árs hamall og hefur barist síðan 2015. Hann er með tvo sigra úr síðustu þremur viðureignum en báðir sigrarnir unnust með tæknilegu rothöggi. Pedro hefur klárað 7 af 14 andstæðingum en honum tókst ekki halda sigurgöngunni áfram þegar hann mætti Nikola Prajo fyrr á árinu. Bardaginn er hér fyrir neðan og er besta vísbendingin okkar um getu og styrkleika Pedro Martinez. Bardaginn byrjar á 4:14:00.
Bardaginn gegn Pedro kemur á góðum tíma fyrir Kolbein sem stefnir á að eiga viðburðaríkt ár 2026. Þar að auki verður þetta svakalegur lokahnykkur á mjög skemmtilegu hnefaleikaári en seinna Icebox kvöldi ársins er daginn fyrir bardagann hans Kolbeins. Hnefaleikaaðdáendur munu geta keypt aðgang að netstreymi mótshaldara til að horfa eða panta borð á áhorfspartý í Minigarðinum.





