HomeBoxLandsliðið í hnefaleikum heldur út til Svartfjallalands

Landsliðið í hnefaleikum heldur út til Svartfjallalands

Davíð Rúnar og Nikita Stepanov eru meðal þriggja sem skipa landsliðsnefndina sem valdi hópinn fyrir U19 heimsmeistaramótið í hnefaleikum. Þeir leiða keppendurna út en þetta árið voru það þeir Ronaldi Bjarka (HR) og Mihail Fedorets (Bogatýr) sem verða fulltrúar Íslands á alþjóðlegum vettvangi en þetta er í fyrsta skipti sem við Íslendingar tökum þátt á HM í hnefaleikum.

Heimsmeistaramótið er auðvitað stærsta verkefni sem hægt er að finna og var augljóst að Rónald Bjarki yrði sendur þar sem hann hefur staðið sig hrikalega vel erlendis upp á síðkastið og varð Norðurlandameistari fyrr á árinu. Mihail Fedorets fékk einnig kallið eftir að hafa verið mjög virkur og sýnt miklar bætingar en hann hefur barist á hverju mótinu á fætur öðru hér heima og erlendis.

Mótið verður haldið í Svartfjallalandi og eru 70 þjóðir skráðar til leiks sem er metþátttaka þjóða. Mótið er með þannig sniði að keppendur skrá sig til leiks og er svo dregið í viðureignir og raðað í riðla við upphaf mótsins. Mótið er frá 14.–27. október og gætu strákarnir átt stífa dagskrá fyrir höndum þar sem þeir keppa báðir í fjölmennum flokkum.

Að sögn Davíðs ætlar liðið að gefa sig allt í verkefnið. Undirbúningurinn hefur gengið vel og allir keppendur eru heilir og klárir. Landsliðið sótti síðast titil á Norðurlandameistaramótinu fyrr á árinu en hefur ekki tekist að ná verðlaunum annars staðar þar sem það hefur tekið þátt en Davíð ítrekar að liðið sé komið á mjög hátt stig og minnir á að Ronald Bjarki hafi unnið keppanda í Brandenburg sem svo seinna varð Evrópumeistari. Af frásögn Davíðs að dæma mun líklega vera hársbreidd milli hláturs og gráturs á þessu móti og dagsformið mun skipta miklu máli.

Davíð hefur ekki verið stuðningsmaður þess að fara á svona sterkt mót og bara til þess að fara. Hann vill hins vegar fara þegar landsliðið á erindi til þess og telur hann stundina vera núna.

Hægt verður að fylgjast með gangi mála á WorldBoxingTv

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið