Diego Lopez og Jean Silva mættust í aðalbardaga UFC Noche kvöldsins sem haldið var í Frost Bank Center San Antonio, TX United States stadium. Jean Silva þótti sigurstranglegri fyrir bardagann en það var Diego Lopez sem bar sigur úr bítum eftir tæpar 2 lotur.
Diego Lopez fékk tækifæri á titlinum þegar hann mætti Alexander Volkanovski fyrr á árinu. Eftir að hafa boðið upp á lítið spennandi í þeim bardaga virtist MMA heimurinn hafa misst trú á Lopez sem var talinn töluvert ólíklegri til sigurs gegn Jean Silva að mati aðdáenda. Jean Silva kom inn í bardagann á 13 bardaga sigurgöngu sem Lopez stöðvaði með glæsilegri frammistöðu í nótt.
Í fyrstu lotu tókst Diego Lopez að draga Jean Silva í gólfið eftir að hafa gripið snúningsspark frá Silva sem berskjaldaið heldur betur bakið hans. Þegar bardaginn kom í gólfið var getumunurinn sjáanlegur og lét Lopez refsinguna dynja yfir Silva. Silva gerði vel í að hreyfa sig um, passa að bardaginn yrði ekki stöðvaður og tókst að lokum að finna leið út og upp á fætur.
Í standandi stöðu var Silva með yfirhöndina og lenti nokkrum mjög öflugum frammspörkum undir hökuna á Lopez en spörkin notaði Silva sem einskonar uppercut gegn Lopez.Þetta var klárlega eitthvað sem hann hafði sett upp fyrir bardagann.
Endirinn á bardaganum kom eftir 4:48 í annarri lotu. Silva hafði reynt snúningsolnboga asni oft í bardaganum, en upphafið að endanum kom þegar Lopez ákvað að svara í sömu mynt og smellhitti snúnigsolnbogi frá Lopez á Silva sem datt strax í gólfið. Lopez lét þá Ground N Pount dynja yfir Silva og stökk dómarinn inn til að stöðva bardagann.
Silva var ekki sáttur með dómarann og taldi hann hafa stöðvað bardagann snemma. Silva hefur nokkuð til síns máls en þetta var langt frá því að vera glórulaus ákvörðun.
Bardaginn var valinn Fight of the Night og fékk Lopez einnig Performance of the Night fyrir sínan frammistöðu. Það gerast heilar 100.000 $ í bonusa.
Sigurinn styrkir stöðu Diego Lopez í fjaðurvigtinni og gæti leitt til þess að hann fái annað titilskot gegn Volkanovski.





