Tveir glímumenn frá Mjölni ferðuðust til Póllands síðustu helgi og enduðu þeir báðir á palli. Þeir Jón Frank Jóhannesson og Baltasar Diljan kepptu báðir í byrjendaflokki en Jón var í 15 – 17 ára aldursflokki á meðan Baltasar glímdi í fullorðinsflokki. Ásamt Mjölnismönnum voru fjórir keppendur frá Reykjavík MMA og enduðu þrír og af fjórum á palli.
Jón Frank byrjaði hóf sitt mót á glímu gegn Ukraínumanninum Artem Kiruta sem hann vann sannfærandi með uppgjafartaki. Hann var að vinna glímuna 2 – 3 á stigum fram að því en sigurinn kom honum áfram í undanúrslit þar sem hann mætti heimamanninum Aleksander Ozimek. Jón tapaði þeirri glímu fyrir uppgjafartaki eftir eina og hálfa mínútu og náði þar með ekki í úrslitaglímuna. Jón keppti upp á bronsið gegn öðrum Úkraínumanni, Oleksii Kravchenko. Jón vann glímuna 2 – 0 á stigum eftir 6 mínútur. Ísland 2 – 0 Úkraína, þökk sé unga Mjölnismanninum.
Baltasar Diljan keppti einnig fyrir hönd Mjölnis en átti ekki jafn reynsluríkt mót og Jón því Baltasar var töluvert óheppnari með metnaðarfulla andstæðinga. Jón fékk frían sigur í fyrstu umferð þar sem flokkurinn hans var ekki fullmannaður. Í annarri umferð átti hann svo að mæta Botond Apro frá Ungverjalandi en sá mætti ekki til leiks. Þar með var Baltasar kominn með tvo sigra án þess að svitna.
Baltasar fékk svo alvöru glímu í þriðju umferð þegar hann mætti Vitalii Korshak, Ukraínumanni sem æfir hjá Reykjavík MMA hérna heima. Baltasar tapaði þeirri viðureign fyrir uppgjafartaki enda var Vitalii orðinn funheitur eftir fyrri tvær glímurnar sínar. Baltasar tapaði gegn Vitalii í undanúrslitum og var þar af leiðandi kominn í bronsglímuna. Hann mætti þar Rúmenanum Valeriu Satbei sem Baltasar kláraði með Buggy Choke eftir fjórar mínútur.
Reykjavík MMA með gull og tvenn silfur
Vitalii Korshak átti hreint stórkostlegt mót, sigraði fjórar glímur og hreppti gullið. Vitalii hóf mótið með sannfærandi sigri á Christoffer Björk frá Svíþjóð en Vitalii fann uppgjafartakið eftir tvær og hálfa mínútu. Næstur í hakkavélina var heimamaðurinn Jan Polanski en sá entist í 5 mínútur áður en Vitalii fann uppgjafartakið.
Eins og áður kom fram mætti Vitalii svo Baltasari frá Mjölni og sigraði hann með uppgjafartaki eftir 3 mínútur og vann sér þar með pláss í úrslitaglímu -76 kg flokk fullorðinna. Þar sigraði Vitalii spánverjann Didac Morales Robles 3 – 0 á stigum eftir 6 mínútna glímu og landaði fyrstu gullverðlaununum sínum á ADCC.
MMA-bardagavélin Hekla Friðriksdóttir vann silfurverðlaun eftir frábært mót. Hán hóf mótið með sigri gegn Elizabeth Kristel en Hekla kláraði glímuna með rear naked choke uppgjafartaki þegar 11 sekúndur voru eftir á klukkunni. Hekla var þá komin í undanúrslit og átti að mæta Anothia Wtzei frá Þýskalandi. En sú lét ekki sjá sig og fékk Hekla dæmdan sigur og sæti í úrslitaglímunni. Þar mætti Hekla hinni 16 ára Kinga Stepien frá Póllandi en henni tókst að ná Heklu með armbar úr guard. En Hekla tekur eflaust mikla reynslu ásamt silfrinu heim.
Herachenko Ernest vann einnig til silfurverðlauna á mótinu, en hans mót hófst á 5 – 0 sigri gegn Ítalanum Luigi Veniero. Ernest hélt svo gefnum hætti áfram og sigraði Ahmed Abdullah frá Kuwat á stigum í undanúrslitum. En það var svo Moldavíumaðurinn Andrei Moisenco sem kaus að skemma partíið fyrir Ernest en Andrei tókst að læsa inn uppgjafartaki á Ernest eftir eins og hálfs mínútna glímu. Ernest var sjáanlega svekktur með úrslitin og silfrið.
Roman Korshak, litli bróðir Vitalii Korshak, keppti einnig á mótinu fyrir hönd Reykjavík MMA. Roman er 15 ára gamall og keppti í 15 – 17 ára 80+ kg flokki. Róman tapaði báðum glímunum sínum á stigum en fékk vonandi góða reynslu út úr mótinu engu að síður.







