Það var tilkynnt um að Magomed Ankalaev myndi fá tækifæri á bardaga við Alex Pereira, léttþungavigtarmeistara UFC, á UFC 313. Nú hefur Ankalaev lýst yfir óánægju sinni með framkomu Pereira en Ankalaev telur að Pereira sýni bardaga þeirra á milli óvirðingu með því að þjálfa aðra bardagamenn í bardögum en Pereira hefur verið í horninu hjá Sean Strickland á UFC 312 um liðna helgi. Strickland tjáði sig um nærveru Pereira í aðdraganda UFC 312 en hann sagði að Pereira væri reiður og af einhverri ástæðu væri honum meinilla við Dricus Du Plessis og þess vegna væri hann í horninu hjá sér á UFC 312.
Sean Strickland var þó ekki eini bardagamaður kvöldsins á UFC 312 sem Pereira aðstoðaði en hann var einnig í horninu hjá Rodolfo Bellato og þá má einnig sjá myndband bak við tjöldin á viðburðinum þar sem Pereira undirbýr Bellato.
Eins og komið hefur fram er Ankalaev ósáttur við þessa framkomu Pereira og telur að hann ætti að vera að einbeita sér að bardaga þeirra á milli sem fer fram á UFC 313 sem haldið verður 8. mars. Í færslu á X sagði Ankalaev: „Þessi gaur heldur áfram að ferðast og gleymir að hann er að fara að berjast fyrir lífi sínu 8. mars. Hann verður aldrei samur eftir þann bardaga.“ Þá sagði Ankalaev í annarri færslu á X segir: „Mig hefur aldrei langað til að meiða neinn á ævinni eins og mig langar til að meiða Alex.“ Í annarri færslu segir Ankalaev: „Ég er búin að vera að ganga upp fjöll, höggva við, synda í frosnum ám og Alex er að dansa og gera myndbönd eins og Tik Tok-skvísa.“ Þá er einnig ein færsla þar sem hann birtir mynd af Israel Adesanya þar sem Adesanya stendur yfir Pereira og lætur eins og hann sé að skjóta hann með boga og yfirskriftin er „ekki gleyma, ég mun gera það sama“.

Það er nokkuð ljóst að Ankalaev finnst Pereira vera að sýna sér og bardaganum mikla óvirðingu með þessum ferðalögum sínum. Það er hins vegar alveg rétt að stutt er í bardagann og eru flestir á því að Pereira hafi tekið áhættu með því að ferðast til Ástralíu fyrir UFC 312 svo stuttu fyrir bardaga hans og Ankalaev. Það má velta því upp hvort Pereira sé að verða fyrir áhrifum af þeirri gríðarlegu frægð sem hann nýtur um þessar mundir og sé að vanmeta Ankalaev en Ankalaev tók bardagann þrátt fyrir að hann væri haldinn í miðju ramadan-tímabili múslima og hefur það trúlega einhver áhrif á hversu ósáttur hann er með að Pereira virðist ekki vera að taka bardaganum alvarlega.





