Einn af þjálfurum Jose Aldo, sparkboxarinn Emerson Falcao, kláraði bardaga sinn um helgina með rothöggi eftir aðeins 98 sekúndur.
Falcao vann Oscar Vera á WGP 35 bardagakvöldinu í Brasilíu á föstudaginn. Falcao þjálfar hjá Nova Uniao þar sem fjaðurvigtarmeistarinn Jose Aldo æfir. Þetta var fyrsti bardagi Falcao í tvö ár eftir fótbrot og þrjár aðgerðir.