HomeBoxNorska rothöggsvélin Brage Lange í Fimmtu Lotunni

Norska rothöggsvélin Brage Lange í Fimmtu Lotunni

Norska rothöggsvélin Brage Lange, sem verður fyrsti atvinnu hnefaleikamaðurinn til að berjast á íslenskri grundu þegar hann mætir Zoran Paunovic í opnunarbardaga aðahluta Iceland Boxing Night í Gamla Bíó 10. apríl, er gestur Fimmtu Lotunnar þessa vikuna.

10. apríl nk. mun Nordic Ring Promotion halda sinn fyrsta viðburð þegar hnefaleikar snúa aftur í Gamla Bíó eftir 70 ára fjarveru. Gamla Bíó var miðpunktur hnefaleika allt frá því að fyrsta mótið var haldið þar árið 1928 og þangað til hnefaleikar voru bannaðir með lögum árið 1956. Það verður því söguleg stund þegar Brage og íslensku atvinnumennirnir okkar stíga inn í hringinn í Gamla Bíó.

Brage kom til Íslands bæði til að keppa á þessari risa hnefaleikaveislu í Gamla Bíó en einnig til að æfa með Kolbeini Kristinssyni í undirbúningi fyrir stóra kvöldið.

Fimmta Lotan ræddi við Brage um ferilinn, æfingarnar með Kolbeini, komandi bardaga og allt milli himins og jarðar.

Þátturinn er á ensku

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið