Íslenska landsliðið í hnefaleikum keppir um helgina á Norðurlandamótinu en þar keppa Ísland, Svíþjóð, Finnland, Noregur og Danmörk á milli sín árlega. Mótið er að þessu sinni haldið í Helsinki í Finnlandi en það færist á milli ára og er á Íslandi 2027.
Í þetta skipti eru tveir keppendur sem keppa fyrir Ísland en það eru þeir Nóel Freyr Ragnarsson og Ronald Bjarki Mánason. Með þeim sem landsliðsþjálfari er Davíð Rúnar Bjarnason og einnig tveir dómarar og formaður Hnefaleikasambands Íslands.
Nóel keppir í -65kg flokki en hann er að fara niður um flokk miðað við síðustu mót og er klár í slaginn en hann drógst gegn Svíþjóð og mætir Patrick Wreder á morgun laugardag. Allur undirbúningur hefur gengið vel og Nóel átti virkilega annasamt og gott ár í fyrra og kemur því mjög tilbúinn inn í þennan bardaga. -65kg flokkurinn er fullbókaður á mótinu og gæði í öllum þáttakendum.
Ronald mætir síðan Väinö Nore frá Finnlandi beint í úrslitum á morgun en þeir eru bara tveir í hans flokk -50kg Youth. Ronald er á virkilega góðri siglingu og er nýkominn frá Kanada þar sem hann var við æfingar og er með skýrt markmið að halda þeirri siglingu áfram.
Ferðalagið hjá liðinu var ekki alveg eins og planið var upprunalega en öllum flugum var aflýst í gærmorgun og þurfti að hafa hraðar hendur til að koma hópnum út en dregið var í gærkvöldi og það hefði alveg getað endað svo að það hefði þurft að ná vigt nánast við lendingu og keppa samdægurs en lán í óláni að það dróst ekki svo í flokkunum og eins og áður segir keppa þeir báðir á morgun.
Á mótinu er mjög sterk samkeppni en þar má finna verðlaunahafa frá fyrri Ólympíu- og heimsmeistaramótum.
Mótinu er streymt í beinni á youtube rás finnska sambandsins og er hægt að nálgast það hér:
https://m.youtube.com/watch?v=uKrRvLnr9-w&pp=iggCQAE%3D
Styðjum okkar lið! ÁFRAM ÍSLAND!





