Þorgils Eiður Einarsson gerði sér lítið fyrir og steinrotaði andstæðing sinn, Þjóðverjann Soeren, í hringnum í Tælandi í gær og kom rothöggið í fyrstu lotu eftir vinstri krók í lifrina sem hann fylgdi eftir með banvænu hnéi í höfuðið sem virtist senda Soeren beint í skuggavíddina.
Soeren lenti kannski örfáaum framspörkum rétt svo til þess að viðhalda fjarlægð en Þorgils kom sér þægilega undan öllum stóru höggum og spörkum sem Soeren kastaði í hann og lét hann finna vel fyrir því. Þorgils virtist lenda að vild öllum sínum olnbogum, hnjám í síðuna, lágspörkum, framspörkum og hvað það sem hann vildi áður en hann batt endahnútinn með lokafléttunni.
Myndband með hápunktum bardagans frá MAA Koh Phangan, gymminu hans Þorgils, má finna hér að neðan:





