Einn besti hefnaleikabardagamaður síðari ára, Oleksandr Usyk, vill berjast tvo bardaga í viðbót á næstu tveimur árum áður en hann leggur hanskana á hilluna. Usyk barðist síðast við Tyson Fury í desember síðastliðnum þar sem Usyk sigraði með einróma dómaraákvörðun.
Usyk, sem er 37 ára gamall, var spurður hver hans næstu bardagar gætu verið í viðtali við TNT sports. Usyk sagðist ætla að berjast við sigurvegara úr viðureign Daniel Dubois og Joseph Parker sem berjast um IBF-titilinn þann 22. febrúar næstkomandi en það er eini titillinn sem Usyk er ekki handhafi af. Því næst sagði Usyk að það gæti vel komið til greina að síðasti bardagi á hans ferli gæti verið enginn annar en Alex Pereira, núverandi léttþungavigtarmeistari UFC.
Pereira er ekki ókunnugur hnefaleikum en hann er margfaldur meistari í sparkboxi og þá hefur hann einnig barist nokkra bardaga í áhugamannahnefaleikum og einn bardaga í atvinnumannahnefaleikum þegar hann sigraði Marcelo de Souza Cruz með tæknilegu rothöggi. Þá hefur Pereira sýnt hnefaleikum mikinn áhuga, bæði sýndi hann áhuga á því að taka áskorun Jake Paul sem skoraði á Pereira.