Porto Box Cup hefst í dag í Porto, Portúgal þar sem Hnefaleikafélög Kópavogs og Reykjavíkur er staddir með fjöldan allan af keppendum en alls 950 keppendur munu berjast í 7 hringjum yfir helgina. Porto Box Cup er stærsta hnefaleikamót í heiminunum og eflaust fá boxararnir okkar góða samkeppni og dýrmæta reynslu þar á næstu dögum.
Þrír Íslendingar berjast í dag, þeir Kormákur Steinn Jónsson og Arnar Jaki Smárason frá HFK og Sigurbergur Einar Jóhannsson frá HR. Restin keppir í undanúrslitum á morgun eða fara beint í úrslit.
Alls eru fjórtán íslenskir keppendur, níu frá HFK og 5 frá HR


Hér má finna hlekk á lifandi streymi frá mótinu:
Sigurbergur Einar Jóhannsson mætir Bretanum Rayyan Ahmed í Hring D kl 11:51
Kormákur Steinn Jónsson mætir Pólverjanum Mateusz Matlosz í hring B kl. 12:51
Arnar Jaki Smárason mætir Spánverjanum Ernesto Alonso í hring F kl. 12:57
Nákvæmar tímasetningar gætu auðvitað breyst.






