HomeErlentUngur Lithái sló í gegn í frumraun sinni

Ungur Lithái sló í gegn í frumraun sinni

Mantas Kondratavičius kemur úr Fighter House í Litháen en sá ungi mætti taphrynunni Antonio Trócoli í frumraun sinni í UFC. Mantas fékk samning við UFC í gegnum Contender Series en Antonio þótti spennandi viðbót við UFC á sínum tíma áður en honum mistókst að halda athyglinni.

Mantas byrjaði bardagann með krafti og var nálægt því að klára Antonio snemma. Bardaginn fór að mestu leyti fram standandi og tókst Mantast að flétta saman höggin sín ágætlega í bardaganum og gaf Antonio skurð í fyrstu lotu.

Antonio virtist eiga virkilega erfitt með að eiga við kraftinn hans Mantas sem var eins og ljón að leika sér að bráðinni. Antonio tókst að kaupa sér tíma með því að gera mikið úr vægu pungskoti sem hann fékk frá Mantas og seinna gaf hann sjálfur Mantas pungskot af hnénu sínu og nýtti tímann til að leggja sig á búrinu á meðan.

Mantas langaði greinilega að klára bardagann og benti ítrekað á miðjuna til að fá Antonio til að standa kjuran og berjast við sig en allt kom fyrir ekki. Antonio kláraði bardagann á því að skjóta í vonlausa fellutilraun sem Mantas greip glæsilega og yfirbugaði svo Antonio og lagði hann á bakið. Bardaginn endaði með ground n pound frá Mantas áður en þriðja lotan kláraðist. Algjör einstefna hjá þessum 26 ára gamla Lítháa sem á svo sannarlega skilið erfiðara verkefni í næsta bardaga.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið