HomeErlentPyfer kláraði Adesanya í annarri lotu eftir að hafa snúið bardaganum við

Pyfer kláraði Adesanya í annarri lotu eftir að hafa snúið bardaganum við

Joe Pyfer vann einn stærsta sigur ferils síns þegar hann kláraði Israel Adesanya í annarri lotu eftir dramatískan bardaga sem tók miklum breytingum á stuttum tíma en þeir tveir mættust í aðalbardaga kvöldsins í Seattle, Washington í nótt.

Adesanya byrjaði bardagann af mikilli yfirvegun og virtist vera að berjast nánast fullkominn bardaga í fyrstu lotu. Hann stjórnaði fjarlægðinni vel, skipti stöðugt um stöðu, lenti hreinum höggum og lágsparkum og hélt Pyfer frá sér. Á sama tíma náði hann að forðast flestum af kraftmiklum höggum Pyfer og tók fyrstu lotuna sannfærandi.

Í annarri lotu breyttist myndin hins vegar. Adesanya virtist tilbúnari til að standa nær og skiptast á höggum við Pyfer, sem reyndist hættuleg ákvörðun gegn jafn kraftmiklum andstæðingi. Bardaginn þróaðist yfir í hörð höggskipti þar sem báðir lentu höggum, en Pyfer bar greinilega meiri þunga í sínum höggum.

Vendipunkturinn kom þegar Pyfer lenti þungum hægri króki sem rokkaði Adesanya illa. Strax í kjölfarið fór hann í fellu og náði að koma bardaganum niður á gólfið þar sem hann tók fulla stjórn.

Pyfer lenti í halfguard og vann sig hratt í yfirburðastöðu, fór í mount og tók bakið þar sem hann flatti Adesanya út. Pyfer náði body triangle og lét þaðan höggin dynja á Adesanya, bæði á höfuð og líkama, á meðan Adesanya reyndi að verja sig en var greinilega orðinn nokkuð illa særður.

Að lokum sá dómarinn Herb Dean nóg og stöðvaði bardagann þegar Adesanya huldi sig undir stöðugum höggum.
Þetta var frammistaða sem sýndi bæði seiglu og grimmd hjá Pyfer. Eftir að hafa verið undir í fyrstu lotu og þurft að vinna sig inn í bardagann fann hann augnablikið, nýtti kraft sinn til fulls og kláraði eitt af stærstu nöfnum íþróttarinnar. Sigurinn sendir sterk skilaboð um að Pyfer gæti verið raunverulegur titiláskorandi í millivigtinni en barist verður um titilinn næst 9. maí þegar Sean Strickland fær tækifærið á að skora á meistarann Khamzat Chimaev á UFC 328. Það verður spennandi að sjá hvaða bardaga Pyfer fær næst en með sigri yfir Adesanya sem sat fyrir þennan bardaga í fjórða sæti styrkleikalistans er ljóst að nafnið hans mun taka hátt stökk úr fjórtanda sætinu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið