HomeErlentRenato Moicano mætir Islam í stað Tsarukyan á UFC 311

Renato Moicano mætir Islam í stað Tsarukyan á UFC 311

Dana White var að kynna það rétt í þessu að Renato Moicano mun stíga inn fyrir Arman Tsarukyan og mæta Islam Makhachev í léttvigtartitilbardaganum á UFC 311 á morgun.

Moicano átti að mæta Beneil Dariush fyrr á kvöldinu en fær nú tækifæri á að koma höndum sínum yfir léttvigtarbeltið með sigri á Islam Makhachev. Moicano hefur verið á blússandi siglingu undanfarið, unnið 4 bardaga í röð og sendi gríðarlega sterk skilaboð til annarra bardagamanna í þyngdarflokknum þegar hann sigraði Benoit Saint-Denis með afgerandi hætti í september í fyrra.

Moicano sagði í myndbandi á instagram síðu UFC að hann sé svo hamingjusamur að fá þetta tækifæri og sagðist hafa vitað að það gæti gerst og þess vegna hefur hann æft fyrir 5 lotur og æft sig fyrir southpaw bardagamann.

Það fylgdi ekki sögunni hvað verður þá um Beneil Dariush en öllu máli skiptir auðvitað að titilbardaganum sé reddað og eigum við von á algjörri veislu á morgun!

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið