HomeErlentShara Magomedov kveðst hafa verið fárveikur í tapinu gegn MVP

Shara Magomedov kveðst hafa verið fárveikur í tapinu gegn MVP

Michael Page sigraði Shara Magomedov örugglega með einróma dómaraákvörðun um síðastliðna helgi og voru margir sem urðu fyrir vonbrigðum með frammistöðu Shara í bardaganum. Shara hefur nú sett fram skýringar á frammistöðu sinni en hann kveðst nú hafa verið fárveikur þegar hann barðist við Page og telur sig það hafa valdið því að hann náði ekki góðri frammistöðu í bardaganum. Shara segir að hann hafi verið með meltingar- og magavandamál sem hafi haft þær afleiðingar að hann fann að fæturnir voru eiginlega ekki undir honum allan bardagann og var hann ekki viss á köflum hvort hann myndi kasta upp.

Fyrir bardagann við Page hafði Shara ekki tapað á sínum atvinnumannaferli og hafði UFC eytt talsverðu markaðspúðri í að kynna hann fyrir aðdáendum samtakanna en afgerandi tap fyrir Page hefur sett hype-lestina aðeins af sporinu. Nú þarf Shara að vinna sig aftur upp í þennan gæðaflokk af bardagamönnum og enn spurning hvort UFC muni taka eitthvað tillit til veikinda Shara við mat á frammistöðu hans við Page. Shara er ekki inni á topp 15 styrkleikalista UFC og þarf væntanlega að sigra einn eða tvo bardaga áður en hann fær annað tækifæri á topp 15 bardagamanni.

Á sama tíma hefur þessi sigur gefið Page byr undir báða vængi og er í 15. sæti á styrkleikalista UFC og gæti vel hafa unnið sér inn bardaga gegn sterkum andstæðing en hann færði sig upp um vigt í bardaga sínum við Shara og hefur sýnt að hann er til í hvern sem er hvenær sem er.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið