HomeErlentUFC losar Jairzinho Rozenstruik undan samningi

UFC losar Jairzinho Rozenstruik undan samningi

Það er stutt á milli hláturs og gráturs í bardagaleiknum en UFC hefur losað Jairzinho Rozenstruik undan samningi en Rozenstruik var í níunda sæti yfir þungavigtarbardagamenn UFC fyrir skömmu. Rozenstruik hefur átt misjöfnu gengi að fagna þó að frammistöður hans í síðustu bardögum hafi verið ágætar en um síðastliðna helgi tapaði hann fyrir Sergei Pavlovich með einróma dómaraákvörðun. Bardagastíll Rozenstruik snýr mikið að sparkboxi en hann hefur einnig verið þekktur fyrir heldur rólegan bardagastíl og hafa einhverjir verið ósáttir við hversu rólegur í tíðinni hann getur verið.

Hvernig sem því líður var Rozenstruik einn af tíu bestu þungavigtarbardagamönnum UFC og kemur nokkuð á óvart að samtökin hafi sleppt einum af betri bardagamönnum sínum í vigt sem þykir heldur grunn en ekki eru margir bardagamenn sem eru að berja á dyr Jon Jones eða Tom Aspinall um titilbardaga. Rozenstruik hefur sigrað tvo af fjórum bardögum hans á síðustu tveimur árum sem hefur ekki þótt ástæða til að sleppa bardagamönnum hingað til en mögulega er nýtt blóð á leiðinni upp í deildinni sem forráðamenn UFC hafa bak við eyrað.

Það verður áhugavert að sjá hvað Rozenstruik tekur sér fyrir hendur úr þessu, önnur bardagasamtök hljóta að vera áhugasöm um þennan flotta sparkboxara og gæti hann vel fært sig yfir í PFL og gert þar góða hluti.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið