Í co-main bardaga kvöldsins í Las Vegas mættust þungavigtarmennirnir Waldo Cortes-Acosta og Ante Delija í miklum slag sem tók óvænta stefnu og úr varð mikil ringulreiði og dramatík.
Bardaginn byrjaði hratt, en snemma í fyrstu lotu fékk Cortes-Acosta slæmt augnpot frá Delija og huldi sig strax gegn höggunum þar til dómarinn stöðvaði bardagann. Þá héldu margir að Ante Delija hefði unnið og hann sjálfur einna helst. Enginn virtist vita nákvæmlega hvað væri í gangi og var engin fimm mínútna klukka sett af stað eins og tíðkast þegar menn fá fingur í augað. Waldo Cortes-Acosta fékk að lokum tækifærið til að harka þetta af sér og bardaginn hélt áfram. Hann endaði á að rota Delija með glæsilegu hægri handar móthöggi stuttu síðar.
Augnpotið stoppaði bardagann í stutta stund þegar dómarinn gaf Cortes-Acosta tíma til að jafna sig. Hann virtist pirraður, en þegar bardaginn hófst á ný tók hann stjórnina yfir. Delija reyndi að setja pressu og sækja að Waldo sem svaraði honum með rothöggi.
Þetta var þriðji sigur hans í röð og sá áhrifamesti hingað til. Hann sýndi styrk og hörku með því að halda áfram og halda einbeitingu eftir augnpotið og klára bardagann með stæl. Hann féll svo til jarðar sjálfur og kvartaði mikið undan auganu.
Delija, sem upplifði örugglega mikið adrenalín-dump, er nú kominn með fyrsta tapið á UFC ferlinum en hann sendi sterk skilaboð til annarra í þyngdarflokknum með frammistöðu sinni í UFC frumrauninni þar sem hann kláraði Marcin Tybura í fyrstu lotu.





