Undirkort UFC París bauð áhorfendum upp á hreina skemmtun þar sem enginn bardagi fór alla leið í dómaraúrskurð. Allir bardagarnir enduðu annaðhvort með rothöggi eða uppgjafataki, sem tryggði stuð í Accor Arena frá fyrstu mínútu.
Kaue Fernandes sýndi á ný að hann er með ein hættulegustu lágspörkin í UFC. Þetta var annar bardaginn í röð þar sem hann sparkaði bókstaflega undan báðum fótum andstæðings síns og tryggði sér sigur tæknilegu lágsparks rothöggi í fyrstu lotu.
Í þungavigtinni vakti Ante Delija mikla athygli í UFC frumraun sinni. Sá Króatíski, sem er fyrrverandi PFL bardagamaður, sýndi frábæra takta og gæti reynst verðmæt viðbót við þyngdarflokkinn. Delija æfir reglulega með Tom Aspinall, þungavigtarmeistara UFC.
Sam Patterson hélt sigurgöngu sinni áfram með fjórða fyrstu lotu „finish“ sigrinum í röð. Hann sótti hart strax frá byrjun og náði fljótt að klára bardagann, sem undirstrikar hversu hættulegur hann er í léttvigtinni.
Undirkortið í heild sinni var sprenghlaðin blanda af krafti, tækni og ákafa – og staðfesti enn og aftur að UFC kvöld í Evrópu, og sérstaklega í París, skila sér nær alltaf með eftirminnilegum bardögum og mögnuðu andrúmslofti. Gamla brýnið Paul Craig lagði hanskana á hilluna eftir tapið gegn Modestas Bukauskas og fjórir bardagamenn fengu frammistöðubónus: Benoit Saint-Denis, Mason Jones, Ante Delija og Kaue Fernandes.






