HomeInnlentSvekkjandi tap fyrir Steinar Bergsson á Golden Ticket

Svekkjandi tap fyrir Steinar Bergsson á Golden Ticket

Steinar Bergsson frá Mjölni mætti Nathaniel Wiredu á Golden Ticket 29 rétt í þessu og þurfti að sætta sig við svekkjandi tap en bardaginn endaði með rear naked choke uppgjafartaki í fyrstu lotu.

Wiredu, sem er greinilega kröftugur glímumaður, skaut umsvifalaust á Steinar þegar bardaginn hófst og ýtti honum upp að búrinu. Steinar náði aldrei að koma sínum leik af stað heldur var hann upptekinn við að verjast sóknum andstæðingsins. Wiredu náði Steinari niður, náði svo bakinu og náði að trufla Steinar nægilega mikið með höggum í gólfinu til að ná að lauma hendinni undir hökuna. Wiredu náði svo alveg að fletja Steinar út og neyða hann til að tappa.

Steinar var sjáanlega mjög svekktur eftir tapið en þetta er annað tapið hans í röð. Liðsfélagi hans, Anton Smári Hrafnhildarson, sótti sinn fyrsta sigur á ferlinum í sínum þriðja bardaga fyrr á kvöldinu og fara Mjölnismenn heim með einn sigur, eitt tap og fullt af reynslu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið